Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Um skrifstofuna

Ráðhús Reykjavíkur

Hlutverk Fjármálaskrifstofu er að tryggja að fjárhagslegir þættir í rekstri borgarinnar séu í samræmi við stefnu hennar á hverjum tíma.

Fjármálaskrifstofa er í reynd stoðsvið sem hefur snertifleti við alla aðra rekstrarþætti A-hluta borgarsjóðs og veitir öðrum stjórnendum fyrirtækisins upplýsingar, stuðning og aðhald. Fjármálaskrifstofa tryggir skipulag og vinnslu við áætlanagerð í samræmi við stjórnunaráherslur á hverjum tíma. Fjármálaskrifstofa tryggir innra fjárhagslegt eftirlit og veitir borgarstjóra og borgarráði upplýsingar um rekstur, stöðu eigna og skulda og aðra þætti sem geta haft áhrif á rekstur fyrirtækisins til lengri og skemmri tíma. Fjármálaskrifstofa sér um bókhaldslegt uppgjör og ársreikning A-hluta og samstæðunnar. Einnig sér fjármálaskrifstofa um fjárreiðu- og eignastýringu, þ.m.t. að tryggja eftirlit með óvirkum fjármunum og ávöxtun fjármuna. 

Fjármálaskrifstofa starfar í fjórum deildum og þær eru áætlanir, bókhald, fjárstýring og uppgjör.