Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Innri og ytri endurskoðun

Ráðhúsið

Innri endurskoðun og ytri endurskoðendur eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta varðandi virkni innra eftirlits.

Báðar starfsstéttirnar lúta siðareglum og stöðlum sem sett eru af fagfélögum þeirra. Hinsvegar er veigamikill munur á tengslum þessara aðila við Reykjavíkurborg, verksvið þeirra og markmið.

Innri endurskoðun er hluti af stjórnskipulagi Reykjavíkurborgar. Ytri endurskoðendur eru á hinn bóginn ekki hluti af stjórnskipulagi borgarinnar þótt borgaryfirvöld hafi ráðið þá til að sinna tilteknum verkefnum.

Innri endurskoðun hefur afskipti af öllum þáttum rekstrarins, bæði fjárhagslegum og ófjárhagslegum. Með stöðugu eftirliti sínu og mati á virkni eftirlitsþátta og verkferla reynir hún að horfa til framtíðaratburða, auk þess sem eitt af hlutverkunum er að reyna að koma í veg fyrir hverskonar misferli.

Meginverkefni ytri endurskoðenda er að leggja árlega óháð mat á ársreikning Reykjavíkurborgar, hvort hann sé í samræmi við lög og góða reikningsskilavenju og gefi glögga mynd af fjárhagsstöðunni á uppgjörsdegi og rekstrarniðurstöðu tímabilsins.

Eðlilegt er að starfsfólk Innri endurskoðunar hitti ytri endurskoðendur reglulega til að ræða sameiginleg hagsmunamál, nýti sér mismunandi hæfni hvers annars, sérfræðiþekkingu og sjónarmið, fræðist um áherslur og nálganir hvors um sig, ræði dekkun endurskoðunaraðgerða og úttektaráætlanir til að minnka hættuna á því að eitthvað verði útundan.