Samstarf við innri endurskoðunardeildir erlendis
Innri endurskoðun leggur metnað sinn í að fylgjast með því sem erlendar innri endurskoðunardeildir aðhafast og að eiga í góðu samstarfi við deildir í nágrannalöndunum.
Deildin er meðlimur í alþjóðasamtökum innri endurskoðenda (The Institute of Internal Auditors, IIA) og samtökum innri endurskoðenda sveitarfélaga á Norðurlöndum
Fulltrúar Innri endurskoðunar hafa sótt ráðstefnurnar Kommunernes Revision (norræn ráðstefna um endurskoðun sveitarfélaga) og IIA International Conference sem er alþjóðleg ráðstefna innri endurskoðenda.
