Hvað er innra eftirlit?

Innra eftirlit er hver sú aðgerð stjórnar, stjórnenda og starfsmanna, sem ætlað er að veita hæfilega vissu um að eftirfarandi markmið náist:
·áreiðanleiki fjárhagslegra upplýsinga;
·árangur og hagkvæmni starfseminnar;
·starfsemi sé í samræmi við lög og reglur.
Skilgreiningin vísar til þess að innra eftirlit er innbyggt í dagleg störf og er hluti af verkferlum, fremur en að vera sjálfstæð deild. Því verður að hafa í huga að það er ekki í meginatriðum bundið við handbækur og eyðublöð, en byggist að verulegu leyti á aðgerðum starfsmanna á öllum stigum skipulagsheildar og er eðlilegur hluti af daglegum störfum þeirra.
Meginþættir innra eftirlits eru stjórnunareftirlit, eftirlitsaðgerðir, áhættumat, upplýsingakerfi (upplýsingar og samskipti) og eftirlitsumhverfi (samtímaeftirlit).
Innra eftirliti er ætlað að tryggja að sett markmið náist, en það getur einungis veitt stjórnendum hæfilega vissu en ekki fullvissu. Þegar tekin er ákvörðun um umfang þess verður að taka mið af kostnaði og ávinningi.
Sbr. skilgreiningu COSO (Committee of Sponsoring Organizations of the Treadway Commission): Internal Control – Integrated Framework, July 1994.