Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

 

Greiðslukjör

Kaupverð byggingarréttar, þ.m.t. gatnagerðargjald og fráveituheimæðargjald, skal greitt innan 45 daga frá samþykkt borgarráðs á sölu byggingarréttarins, nema áður hafi verið samið um viðbótarfrest vegna sérstakra málefnalegra ástæðna. Lóðarhöfum er heimilt að veðsetja byggingarréttinn á viðkomandi lóð og fram að gerð lóðarleigusamnings verða veitt veðleyfi í því skyni, enda hafi öll gjöld vegna lóðarinnar verið greidd, eða fyrir liggur yfirlýsing banka um greiðslu gjaldanna, sem ekki er bundin öðrum skilyrðum en því, að heimiluð verði veðsetning byggingarréttarins á viðkomandi lóð.
Greiðsluskilmálar þessir gilda við alla sölu byggingarréttar, nema borgarráð ákveði annað.