Hlutverk Velferðarsviðs
Velferðarsvið ber ábyrgð á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar þ.m.t. barnavernd og félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa. Í því felst stefnumótun í velferðarmálum, áætlanagerð, samhæfing og samþætting á sviði velferðarþjónustu, eftirlit í samræmi vi lög, reglur, samþykktir og pólítíska stefnu, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustu.
Þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar sjá að mestu um framkvæmd þjónustunnar. Þjónustumiðstöðvar setja sér markmið í starfsáætlunum sínum sem endurspegla áherslur fagráðanna og Velferðarsviðs. Velferðarsvið sér einnig um rekstur margs konar miðlægrar þjónustu þvert á borgina, ss. hjúkrunarheimila og sérhæfðra heimila fyrir börn og fullorðna. Ennfremur ber sviðið ábyrgð á átaksverkefnum vegna endurhæfingar fólks og þróunar þeirra, heilstæðu forvarnarstarfi í Reykjavík og inntöku í húsnæðis- og stuðningsúrræði.
Helstu verkefni eru:
- Stefnumótun og áætlanagerð
- Eftirlit og mat á árangri
- Samhæfing og samþætting
- Nýsköpun og þróun úrræða
- Þróun í mati á gæðum þjónustu
- Tengsl rannsókna og þjónustu
Velferðarsvið vinnur með tveimur ráðum og nefndum og sinnir málefnum þeirra: Velferðarráði og Barnaverndarnefnd Reykjavíkur auk þess sem Velferðarsvið vinnur með Þjónustuhópi aldraðra.
Hér eru upplýsingar um alla þjónustu Reykjavíkurborgar.
|