Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Atvinnutorg

Atvinnutorg.

Atvinnutorg í Reykjavík er nýtt úrræði fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára, óháð rétti til atvinnuleysisbóta. Til að tengjast torginu hefur ungmenni samband við Vinnumálastofnun eða þjónustumiðstöð í sínu hverfi og fær þaðan tilvísun í ráðgjöf hjá Atvinnutorgi.

Síðastliðin tvö ár hefur Velferðarsvið Reykjavíkurborgar unnið að sérstöku virkniverkefni með það að markmiði að hvetja atvinnuleitendur með fjárhagsaðstoð til virkni.

Á því tímabili hefur komið í ljós að skortur er á tækifærum fyrir ungt fólk til að öðlast starfsreynslu á vinnumarkaði.
Atvinnutorgi er ætlað að koma til móts við þennan hóp. Á Atvinnutorgi mun fólk fá stuðning við atvinnuleit og þeir sem eru 18 ára og eldri, með fjárhagsaðstoð, eiga kost á starfsþjálfun eða tímabundinni ráðningu til sex mánaða hjá Reykjavíkurborg í 50% - 100% starfshlutfall og reynt er að mæta þörfum einstaklingsins hverju sinni.

Starfsþjálfun felur í sér að svið, stofnun eða fyrirtæki borgarinnar bjóða ungmennum til sín í þjálfun í einn til þrjá mánuði, tvo til fimm daga vikunnar. Starfshlutfall og verkefni fara eftir aðstæðum hverju sinni og samkomulagi við ungmenni.
Tímabundin ráðning felur í sér að svið, stofnanir og fyrirtæki borgarinnar ráða ungmenni til sín í 6 mánuði í 50% -100% starf. Eingöngu er um tímabundnar stöður að ræða þar sem ungmennin öðlast starfsreynslu en fá meðmæli sem ættu að hjálpa þeim út á almennan vinnumarkað.

Hvort sem um er að ræða starfsþjálfun eða tímabundna ráðningu fá atvinnurekendur starfskraft sér að kostnaðarlausu en skuldbinda sig til að veita viðkomandi hagnýta reynslu og innsýn á þeim starfsvettvangi sem um ræðir. Vinnustaðurinn kemur sér upp tengilið fyrir umrædda einstaklinga sem sinnir jafnframt samskiptum við ráðgjafa hjá Atvinnutorgi. Ráðgjafar þar munu fylgja málum hvers og eins eftir og verða stuðningur bæði fyrir viðkomandi einstakling og starfsstað.

Æskilegt er að hafa ólík störf á skrá til að mæta áhugasviði fólks sem þýðir jafnframt að sumir starfsstaðir gætu þurft að bíða í óákveðinn tíma eftir því að fá starfsnema/starfskraft.

Tökum höndum saman og styðjum ungt fólk í atvinnuleit.

Frekari upplýsingar veitir;:
Verkefnisstjóri Atvinnutorgs í Reykjavík
Tryggvi Haraldsson
tryggvi.haraldsson@reykjavik.is / tryggvi.haraldsson@vmst.is
Sími: 5154878 / 6654900