Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Um sviðið

man walking

Velferðarsvið var formlega stofnað 1. febrúar 2005.

Sviðsstjóri sviðsins er Stella Kr.Víðisdóttir.

Stefnumótun í velferðarmálum er á ábyrgð Velferðarsviðs í umboði Velferðarráðs. Sviðið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki s.s. í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.

Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þmt. félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.

Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík skv. samningi við ríkið þar um.

Á aðalskrifstofu Velferðarsviðs eru eftirfarandi einingar: Skrifstofa sviðsstjóra Velferðarsviðs, skrifstofa velferðarmála, skrifstofa rannsókna og þjónustumats, skrifstofa fjármála og reksturs og mannauðsþjónusta. Lögfræðiþjónusta heyrir beint undir sviðsstjóra.

Framkvæmd velferðarþjónustu fer að mestu fram á þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar hjá Barnavernd Reykjavíkur og hjá Heimaþjónustu Reykjavikur.

Þjónustumiðstöðvar eru sex og sinna þær þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla,frístundaráðgjöf og almennri upplýsingagjöf um starfsemi og þjónustu Reykjavíkurborgar. Þar er hægt að sækja um ýmiss konar þjónustu, svo sem fjárhagsaðstoð, húsaleigubætur, heimaþjónustu og heimahjúkrun. Á miðstöðvunum er veitt félagsleg ráðgjöf, sálfræði- og kennsluráðgjöf vegna leik- og grunnskólabarna, frístundaráðgjöf og fleira. Þjónustumiðstöðvar bera ábyrgð áframkvæmd forvarnastefnu Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í lok árs 2005. Á þjónustumiðstöðvum fer fram þverfaglegt samstarf þar sem lögð er áhersla á samþætta nærþjónustu.

Barnavernd Reykjavíkur ber ábyrgð á framkvæmd stefnu í barnaverndarmálum í borginni og vinnur náið með skólum og þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Markið í starfi Barnaverndar eru: nærþjónusta og samstarf, stuðrningur inn á heimili, barnið í brennidepli og skilvirk og hröð greining mála.

Heimaþjónusta Reykjavíkur sinnir heimahjúkrun í borginni , félagslegri heimaþjónustu um kvöld og helgar og leiðir faglegt samstarf dagþjónustu á sviði heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu í hverfum borgarinnar.

Helstu verkefni Velferðarsviðs eru:

  • Stefnumótun og áætlanagerð
  • Eftirlit og mat á árangri
  • Samhæfing og samþætting
  • Nýsköpun og þróun úrræða
  • Þróun í mati á gæðum þjónustu
  • Tengsl rannsókna og þjónustu
  • Félagsleg og sálfræðileg ráðgjöf
  • Fjárhagsaðstoð
  • Félagsleg heimaþjónusta, heimahjúkrun, heimsendur matur og stuðningsþjónusta
  • Húsnæðismál / búseta / húsaleigubætur
  • Þjónusta við fjölskyldur, börn, ungmenni og aldraða
  • Forvarnarmál
  • Rekstur heimila og úrræða sem tengjast félagslegri þjónustu

Skipurit Velferðarsviðs var samþykkt 16. október 2008.

Hér eru frekari upplýsingar um hlutverk og verkefni Velferðarsviðs.

Hér eru upplýsingar um alla þjónustu Reykjavíkurborgar.