Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Forvarnarsjóður Reykjavíkur

Tillaga um Forvarnarsjóð Reykjavíkur var samþykkt í borgarráði þann 28. apríl 2011. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og efla félagsauð í hverfum Reykjavíkur. Markmið sjóðsins er að styrkja forvarnarverkefni í samræmi við forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar, annars vegar í einstökum hverfum og hins vegar almennt í borginni. Í forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar er m.a. lögð áhersla á að bæta andlega líðan, heilsu og sjálfsmynd barna og unglinga sem og að draga úr og hindra neikvæða hegðun, svo sem vímuefnaneyslu, ofbeldi og afbrot. Ennfremur er stefnt að öflugu samstarfi þeirra aðila sem koma að málefnum barna og ungmenna í hverfum borgarinnar. Hlutverk sjóðsins er jafnframt að vinna að eflingu félagsauðs og stuðla að hvers kyns framförum í hverfum borgarinnar.

Markmið Forvarnarsjóðsins er að veita einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til frumkvæðis og nýsköpunar í hverfum borgarinnar.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí  2012

Auglýsing fyrir Forvarnarsjóð Reykjavíkur

Umsóknareyðublað hér

Úthlutunarreglur Forvarnarsjóðs Reykjavíkur

Umsóknir sendist á netfangið;  forvarnarsjodur@reykjavik.is  Ef ekki er hægt að senda umsókn rafrænt má senda hana til;   

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar

Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík

merkt  „Forvarnarsjóður Reykjavíkur“  

Eyðublað fyrir greinargerð um ráðstöfun styrkfjár

Merki borgarinnar til að setja á kynningarefni 

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur umsjón með sjóðnum.

Nánari upplýsingar veitir Hildur Kjartansdóttir verkefnisstjóri í síma 411 9023, netfang: hildur.kjartansdottir@reykjavik.is. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið forvarnarsjodur@reykjavik.is

Upplýsingar um styrki í einstökum hverfum borgarinnar veita framkvæmdastjórar þjónustumiðstöðvanna.

Hlekkur á nánari upplýsingar um þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar

Þjónustumiðstöðvar eru sex í hverfum borgarinnar og sinna þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, frístundaráðgjöf auk almennrar upplýsingagjafar um starfsemi Reykjavíkurborgar. Þær bera ábyrgð á framkvæmd forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar og þar fer fram faglegt samstarf með áherslu á samþætta þjónustu. 

Hlekkur á skiptingu hverfa í Reykjavík

Umsóknarferlið:

Allar styrkumsóknir sem ganga þvert á hverfi skulu lagðar fyrir samráðshóp um forvarnir í Reykjavík og til umsagnar og samþykktar í Velferðarráði.  Forvarnarverkefni í einstökum hverfum fara fyrir hverfisráð til samþykktar. Allir umsækjendur um styrki úr sjóðnum fá skriflegt svar þegar niðurstöður um úthlutun liggja fyrir.