Forvarnarsjóður Reykjavíkur
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrk úr Forvarnarsjóði Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er meðal annars að stuðla að forvarnarstarfi, eflingu félagsauðs í hverfum borgarinnar. Einnig er markmið sjóðsins að hvetja til frumkvæðis og stuðla að hvers kyns framförum á sviði forvarnar- og félagsauðs.
Með styrk úr sjóðnum gefst einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum frábært tækifæri til frumkvæðis og nýsköpunar á þessum sviðum í samstarfi við Reykjavíkurborg. Marvísleg verkefni koma til greina en þau verða að tengjast minnst einu af ofangreindum markmiðum sjóðsins. Umsóknarfrestur er til 23. september 2011.
Allar nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/forvarnarsjodur
|