|

Reykjavíkurborg býður til sölu byggingarrétt fyrir einbýlishús og keðjuhús á eftirtöldum lóðum í grónum hverfum borgarinnar. Hér fyrir neðan eru hlekkir, þar sem hægt er að ná í umsóknareyðublað og skilmála sem varða sölu byggingarréttarins. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þessa skilmála.
Athygli er vakin á því, að með lóðarumsókn ber að skila tilteknum gögnum varðandi fjármögnun vegna kaupa á byggingarrétti og húsbyggingu. Nánari grein er gerð fyrir því í gr. 4.3 í úthlutunarreglum.
---ooo0ooo---
Nánari grein er gerð fyrir byggingarheimildum á ofangreindum lóðum í viðeigandi deiliskipulagsskilmálum. Almennar úthlutunarreglur gilda eftir því sem við getur átt.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér rækilega þá skilmála sem gilda um viðkomandi lóðir:
| umsóknareyðublað | almennir lóða- og framkvæmdaskilmálar | úthlutunarreglur (almennar reglur um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar fyrir íbúðarhús í Reykjavík) |
Hér má sjá útboðsskilmála og niðurstöðu útboðs í maí/júní 2010 >>>
---ooo0ooo---

Lautarvegur 24: Lóðarstærð: 412 m2 Ein íbúð á lóðinni. Viðmiðunarstærð gatnagerðargjalds: 350 m2 að meðtalinni bílgeymslu og kjallara. Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 12.000.000,-.
Lautarvegur 30: Lóðarstærð: 371 m2 Ein íbúð á lóðinni. Viðmiðunarstærð gatnagerðargjalds: 350 m2 að meðtalinni bílgeymslu og kjallara. Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 12.000.000,-.
Sjá deiliskipulag neðan Sléttuvegar: Deiliskipulagsuppdráttur (1,32 MB); Skýringaruppdráttur 1, (18,8 MB)
Efst á síðu
---ooo0ooo---

Möguleiki á tveimur íbúðum á lóð (sjá nánar í deiliskipulagsskilmálum) og á kjallara, þar sem aðstæður leyfa.
Blesugróf 30: 608 m2 lóð. Ein íbúð + möguleg aukaíbúð, viðmiðunarstærð gatnagerðargjalds er 275 m2 með kjallara og bílgeymslu. Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 13.000.000,-.
Blesugróf 32: 741 m2 lóð. Ein íbúð + möguleg aukaíbúð, viðmiðunarstærð tilboðs 300 m2 með kjallara og bílgeymslu. Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 13.000.000,-.
Blesugróf 34: 643 m2 lóð. Ein íbúð + möguleg aukaíbúð, viðmiðunarstærð tilboðs 290 m2 með kjallara og bílgeymslu. Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 13.000.000,-.
Deiliskipulag: Skipulag Blesugróf - upphaflegt (4,1 MB); Br. skilmálar f. Blesugróf (136 Kb)
Efst á síðu
---ooo0ooo---

Bleikargróf 6: 748 m2 lóð. Ein íbúð + möguleg aukaíbúð, viðmiðunarstærð tilboðs 300 m2 með kjallara (ef aðstæður leyfa). Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 13.000.000,-.
Sjá deiliskipulag: Skipulag Blesugróf - upphaflegt (4,1 MB); Br. skilmálar f. Blesugróf (136 Kb); Skipulag Bleikargróf (1,1 MB)
Efst á síðu
---ooo0ooo---

Jöldugróf 6: 600 m2 lóð. Byggingarréttur fyrir 240 m2 einbýlishús auk kjallara ef aðstæður leyfa.
Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 13.000.000,-.
Sjá deiliskipulag: Skipulag Blesugróf - upphaflegt (4,1 MB); Br. skilmálar f. Blesugróf (136 Kb).
Efst á síðu
---ooo0ooo---

Lambasel 38: 645 m2 lóð. Byggingarréttur fyrir 184 m2 einbýlishús. Búið er að grafa grunn á lóðinni.
Verð byggingarréttar (þ.m.t. gatnagerðargjald) er kr. 13.000.000,-.
Sjá deiliskipulag: Lambasel - deiliskipulagsuppdráttur (14,7 MB)
Efst á síðu |