Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

 

Niðurstaða lóðaútboðs í maí 2010:

Borgarráð hefur samþykkt kauptilboð í byggingarrétt á eftirtöldum lóðum:

Lautarvegur 20 kr. 12.501.000,-
Lautarvegur 22 kr. 14.501.000,-
Lautarvegur 26 kr. 13.501.000.-
Bauganes 10 kr. 18.500.000,-

Groin hverfi - skreytimynd

Lóðir í grónum hverfum í Reykjavík 
- Tilboðsfrestur er útrunninn

Tilboðum í byggingarrétt á neðangreindum lóðum skal skila til þjónustuvers Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12 – 14, 1. hæð, fyrir kl. 16:15 miðvikudaginn 19. maí nk., merkt „kauptilboð – 2010“. Tilboðum skal skila á sérstökum eyðublöðum. Hver bjóðandi skal greiða 300.000,- kr. tilboðstryggingu þegar tilboði er skilað.

Leitað er kauptilboða í byggingarrétt á eftirtöldum lóðum:

Bauganes 10 - lóð fyrir einbýlishús (með aukaíbúð).

Lóðarstærð 683 ferm. Byggingarreitur 20 x 14 m.
Nýtingarhlutfall 0,4 ofanjarðar (0,5 að meðtöldum gluggalausum kjallara).
Leyfilegt heildarflatarmál húss um 275 ferm. auk kjallara.
Einlyft hús, á helmingi grunnflatar, fjær götu, má hús þó vera tvílyft. Mesta hæð einlyfts húss er að hámarki 4,4 m yfir götukóta. Tvílyftur hluti (fjær götu) má vera allt að 5,7 m.

Sjá deiliskipulag: Deiliskipulag Skildinganes

Lautarvegur - 4 lóðir fyrir keðjuhús - ein íbúð pr. lóð.

Lóð m2 Hús Stærð húss
Nr. 20 um 471 2 h + kjallari 250 ferm. + kjallari
Nr. 22 um 471 2 h + kjallari 250 ferm. + kjallari
Nr. 24 um 417 2 h + kjallari 250 ferm. + kjallari
Nr. 26 um 455 2 h + kjallari 250 ferm. + kjallari
Nr. 30 um 371 2 h + kjallari 250 ferm. + kjallari

Sjá deiliskipulag neðan Sléttuvegar: Deiliskipulagsuppdráttur (1,32 MB); Skýringaruppdráttur 1, (18,8 MB)

Lóðir við Blesugróf - einbýlishús

(möguleiki á tveimur íbúðum á lóð, sjá nánar í deiliskipulagsskilmálum)

Lóð m2 Hús Stærð húss (+ kjallari ef aðstæður leyfa)
Nr. 30 um 608 1 (eða 2 íb.) Byggingarréttur fyrir um 240 ferm. hús.
Nr. 32 um 741 1 (eða 2 íb.) Byggingarréttur fyrir um 295 ferm. hús
Nr. 34 um 643 1 (eða 2 íb.) Byggingarréttur fyrir um 255 ferm. hús

Deiliskipulag: Skipulag Blesugróf - upphaflegt (4,1 MB); Br. skilmálar f. Blesugróf (136 Kb)


Bleikargróf 6 - einbýlishús.

748 ferm. lóð. Byggingarréttur fyrir 300 ferm. hús auk kjallara ef aðstæður leyfa.

Sjá deiliskipulag: Skipulag Blesugróf - upphaflegt (4,1 MB); Br. skilmálar f. Blesugróf (136 Kb); Skipulag Bleikargróf (1,1 MB)


Jöldugróf 6 - einbýlishús.

600 ferm. lóð. Byggingarréttur fyrir 240 ferm. hús auk kjallara ef aðstæður leyfa.

Sjá deiliskipulag: Skipulag Blesugróf - upphaflegt (4,1 MB); Br. skilmálar f. Blesugróf (136 Kb);


Lambasel 38 - einbýlishús.

645 ferm. lóð. fyrir 184 ferm. hús. Búið að grafa grunn á lóðinni.

Sjá deiliskipulag: Lambasel - deiliskipulagsuppdráttur (14,7 MB)


---ooo0ooo---

Nánari grein er gerð fyrir byggingarheimildum á ofangreindum lóðum í viðeigandi deiliskipulagsskilmálum. Bjóðendur eru hvattir til að kynna sér rækilega þá skilmála sem gilda um útboðið og viðkomandi lóðir.

Útboðsskilmálar - Tilboðseyðublað - Almennir lóða- og framkvæmdaskilmálar.

---ooo0ooo---