Húsaleigubætur
Þeir leigjendur íbúðarhúsnæði og íbúðarhúsnæðis á vegum félagasamtaka með lögheimili í Reykjavík og sem njóta ekki vaxtabóta geta sótt um húsaleigubætur. Námsmenn eru undanþegnir skilyrði um lögheimili en þurfa þó að flytja aðsetur í húsnæðið sem tekið er á leigu.
Leigjendur íbúðarhúsnæðis eiga rétt á húsaleigubótum að uppfylltum skilyrðum, meðal annars um leigusamning og tekjur.
Upplýsingar um húsaleigubætur (PDF skjal)
Reikniforrit vegna húsaleigubóta
Umsókn um húsaleigubætur (PDF skjal)
Þeir sem eiga lögheimili í Laugardal og Háaleiti sækja um húsaleigubætur hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími: 411 1500.
Sérstakar húsaleigubætur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu á almennum markaði umfram almennar húsaleigubætur. Sérstakar húsaleigubætur er reiknaðar sem hlutfall af almennum húsaleigubótum; fyrir hverjar kr.1.000 fær leigjandi kr. 1.300 í sérstakar húsaleigubætur. Þó geta almennar húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur aldrei verið hærri en kr. 70.000 né farið yfir 75% af leigufjárhæð. Úthlutun sérstakra húsaleigubóta er byggð á mati á aðstæðum umsækjanda. Til þess að eiga rétt á sérstökum húsaleigubótum þarf að uppfylla sömu skilyrði og þegar sótt er um félagslegt leiguhúsnæði. Sjá nánar hér.