Þjónustuíbúðir í Fróðengi vígðar
02.12.2009
Upplestur á frétt 
Þjónustu- og öryggisíbúðir í Fróðengi 1-11 voru vígðar í gær og gafst gestum af því tilefni tækifæri til að skoða sig um á staðnum. Í þessum áfanga verða sjö íbúðir leigðar út á vegum Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og eru þær ætlaðar einstaklingum, eða hjónum, sem þurfa á aðstoð eða stuðningi að halda til að geta búið á eigin heimili. Félagslegri heimaþjónustu og heimahjúkrun verður sinnt á staðnum og verður sú þjónusta veitt frá hjúkrunarheimilinu Eir fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Alls verða 110 íbúðir í húsinu.
Íbúðirnar í Fróðengi 1-11 eru öryggisíbúðir. Í því felst að sólarhringsþjónusta hjúkrunarfræðings verður til staðar og eru allar íbúðirnar búnar fullkomnum öryggiskerfum. Aðgengi fyrir hjólastóla er gott, gangar eru breiðir og auðvelt er að koma sjúkraflutningstækjum að. Í Fróðengi verður þjónusturými þar sem félagsstarfi á vegum Korpúlfa verður sinnt og að auki verður boðið upp á sameiginlegan mat fyrir íbúa.
Innangengt verður í nýja þjónustu- og menningarmiðstöð í Spönginni, sem áætlað er að verði tilbúin í árslok 2013. Í þjónustu- og menningarmiðstöðinni verður fjölbreytt starfsemi og má þar nefna:
- Velferðarsvið með rekstur Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness
- Menningar- og ferðamálasvið með útibú Borgarbókasafns
- Eir með þjónustu fyrir aldraða, ásamt dagdvöl fyrir heilabilaða
- Korpúlfar, félag eldri borgara í Grafarvogi, með félagsstarfssemi
- Grafarvogskirkja með guðsþjónustur og aðrar kirkjulegar athafnir auk félags-, fræðslu- og æskulýðsstarfs
Reglur Velferðarsviðs um þjónustuíbúðir aldraðra >>
Umsóknir um þjónustuíbúðir Velferðarsviðs >>>
Einnig er hægt að sækja um þjónustuíbúðir Velferðarsviðs á þjónustumiðstöðvum >>>
Upplýsingar um menningar- og þjónustumiðstöðina í Spönginni >>>