Ljómandi borg á aðventunni
Café Hljómskálinn opnar á aðventunni
Notaleg jólastemningin verður við opnun Café Hljómskálans á morgun, laugardaginn 12. desember, klukkan 11.00. Marentza Poulsen mun taka á móti gestum af sinni alkunnu snilld og jólabrasskvartett spilar ljúf jólalög klukkan 16.00. Kaffihúsið verður opið fram í janúar og boðið verður upp á ýmsa viðburði.
Jól í koti, jól í borg
Minjasafn Reykjavíkur býður borgarbúum í sögugöngu í Kvosinni á morgun, laugardaginn 12. desember. Í göngunni verður fjallað um helgihaldi í Kvosinni allt frá tíð landnámsmanna til dagsins í dag. Hvernig var jólahald í Reykjavík um aldamótin 1900? Hvar var fyrsta jólatréskemmtunin haldin í Reykjavík? Þessum spurningum og fleirum verður leitað svara við á rölti um Kvosinni. Gangan hefst við Landnámssýninguna í Aðalstræti klukkan 11.00 laugardaginn 12. desember og er þátttaka ókeypis.
Jólasýning Árbæjarsafns 2009
Jólasýning Árbæjarsafns hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðventunni. Ungir sem aldnir geta haft gaman af að rölta milli húsanna og fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Þar má kynnast matargerð og ýmsu handverki, svo sem kertasteypu. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta. Jólasýningin verður sunnudaginn 13. desember kl. 13.00-17.00.
Laugardalurinn í nýju ljósi
Ævintýraleiðangur fyrir alla fjölskylduna.
Ljómandi borg býður borgarbúum í ævintýralega göngu næstkomandi laugardagskvöld, 28. nóvember. Þá mun lýsingarhönnunarhópurinn Guerilla Lighting leiða fólk um Laugardalinn og verða valdar byggingar og staðir upplýstir á nýstárlegan hátt.
Lagt verður af stað frá bílastæði Laugardalshallar klukkan 19:30. Gangan tekur rúman klukkutíma og endar á Kaffi Flóru í Grasagarðinum. Þar verður boðið upp á heitt kakó til hressingar og myndasýningu þar sem afrakstur kvöldsins verður sýndur.
Gangan er öllum að kostnaðarlausu.
Sund og Sinfó
Boðið verður upp beina útsendingu frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Laugardalslauginni í kvöld. Á efnisskránni eru verk eftir Schumann og Brahms I. Tilvalið að slaka í heitum potti og hlýða á fagra tóna. Tónleikarnir hefjast kl. 19.30.
Barnadagar á borgarbókasafniSögustund verður í aðalsafni Borgarbókasafns Tryggvagötu sunnudaginn 22. nóvember kl. 15.00. Valgerður Ólafsdóttir les upp úr bók sinni Saga um tilfinningar. Sunnudagar eru barnadagar á safninu.
Franskir straumar í Ljósmyndasafni ReykjavíkurÍ tengslum við sýninguna André Kértesz Frakkland – landið mitt / Ma France mun Sigurður Pálsson rithöfundur les upp ljóð í anda sýningarinnar og harmonikkutríóið Tríó Vadim Forov spilar franska musett- og valssveiflu í bland við heims- og jazztónlist. Viðburðurinn verður fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20.00 og er skipulagður í samstarfi við Franska sendiráðið og Alliance Francaise