Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Fyrsta umferð Nema hvað? í borgarhluta 1

15.01.2009

Upplestur á frétt 

Borgarhluti 1 keppti í fyrstu umferð spurningakeppninnar Nema hvað? í Frostaskjóli miðvikudaginn 14. janúar. Spyrlar og dómarar voru Hilmar og Ásgeir og stóðu þeir sig með stakri prýði. Hagaskóli og Tjarnarskóli hófu keppnina. Fyrir hönd Hagaskóla kepptu Jón, Óli og Þorsteinn sem lögðu mikið upp úr klæðnaði sínum en þeir voru allir í stíl, klæddir í svart og gult . Fyrir hönd Tjarnarskóla kepptu þeir Hringur, Kolbeinn og Eiríkur. Eins og venjan er, var byrjað á hraðaspurningum og fór svo að Hagaskóli náði 18 stigum en Tjarnarskóli 7. Þar náðu Hagskælingar miklu forskoti sem þeir síðan héldu út viðureignina en þeir sigruðu með 33 stigum á móti 17.

Önnur viðureign kvöldsins var á milli Hlíðaskóla og Landakotsskóla. Fyrir hönd Hlíðskælinga kepptu Tómas Helgi, Bjarki og Ástgeir. Keppendur Landakotsskóla voru þau Vilhjálmur, Kalli og Hekla. Ekki unnust mörg stig í hraðaspurningunum en Hlíðaskóli fékk 9 stig en Langholtsskóli 4. Hlíðaskóli var alla tíð yfir og sigraði að lokum með 17 stigum gegn 10 stigum Landakotsskóla.

Að lokum áttust við Háteigsskóli og Austurbæjarskóli. Það var ánægjulegt að sjá hvað það voru margar stelpur í liðum skólanna en fyrir hönd Háteigsskóla kepptu Marteinn, Berglind og Atli. Keppendur Austurbæjarskóla voru Viktoría, Loki og Halla. Að hraðaspurningum loknum var Háteigsskóli með 11 stig en Austurbæjarskóli með 3 stig. Sá mikli stigamunur breyttist þó fljótt, því Austurbæingar söxuðu fljótt á forskot Háteigsmanna. Viðureignin var æsispennandi þegar staðan var orðin 16-15 fyrir Háteigsskóla og einungis 2 stig eftir í pottinum! Mikil spenna tók um sig meðal áhorfenda en þess má geta að Háteigsskóli og Austurbæjarskóli voru klárlega með öflugustu stuðningsliðin með sér þetta kvöldið. Það fór að lokum svo að hvorugt liðið svaraði síðustu spurningunni rétt þannig að Háteigsskóli sigraði 16-15.

Það hefur verið hefð fyrir því að stigahæsta tapliðið kemst áfram í keppninni og að þessu sinni var það Tjarnarskóli sem mun halda áfram keppni ásamt sigurliðum Hagaskóla, Hlíðaskóla og Háteigsskóla.

Lið Háteigsskóla
Lið Háteigsskóla

Lið Hagaskóla
Lið Hagaskóla

Lið Hlíðaskóla
Lið Hlíðaskóla


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000