16.01.2009
Upplestur á frétt
Undanfarin ár hafa nokkur aðildarfélög ÍBR staðið að alþjóðlegu mótahaldi í janúar með dyggilegum stuðningi borgaryfirvalda og hefur það vaxið og dafnað vel. Svo vel hefur gengið að ákveðið hefur verið að gera þennan viðburð árvissan og að verkefnisstjórn þessa viðburðar verði í höndum Íþróttabandalags Reykjavíkur.
Á leikunum í ár verður keppt í 10 íþróttagreinum þar sem yfir 2.500 keppendur munu taka þátt og þar af rúmlega 300 erlendir. Stefnt er að því að innan 4 ára verði allt mótahaldið með alþjóðlegum hætti þar sem íþróttamenn geta unnið sig inn á stórmót eins og Ólympíuleika og heimsmeistaramót.
Dagskrá Reykjavík International Games 2009
Frekari upplýsingar á http://www.rig.is/
Íþrótta- og tómstundasvið
HöfðatorgBorgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 5000