Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Dregið í aðra umferð Nema hvað?

20.01.2009

Upplestur á frétt 

Nú er fyrstu umferð í spurningakeppni ÍTR fyrir grunnskólana í Reykjavík, Nema hvað? 2009, lokið. Alls tóku 25 skólar þátt. Fyrsta umferðin var æsispennandi þar sem úrslitin réðust oft á lokaspurningunum. Í annarri umferð eigast 16 skólar við í útsláttarkeppni og tryggja sigurvegarar sér rétt til að keppa um hverfismeistaratitill 2009.

Önnur umferð fer fram dagana 19.-22. janúar í félagsmiðstöðvunum Tónabæ, Árseli, 105 og Fjörgyn.

Borgarhluti 2 - mánudaginn 19. janúar í félagsmiðstöðinni Tónabæ
Kl. 19.30 Álftamýrarskóli og Langholtsskóli
Kl. 20.15 Réttarholtsskóli og Vogaskóli

Borgarhluti 3 - þriðjudagur 20. janúar í félagsmiðstöðinni Árseli
Kl. 19.30 Hólabrekkuskóli og Árbæjarskóli
Kl. 20.15 Seljaskóli og Ingunnarskóli

Borgarhluti 1 - miðvikudaginn 21. janúar í félagsmiðstöðinni 105 í Háteigsskóla
Kl. 19.30 Hlíðaskóli og Tjarnarskóli
Kl. 20.15 Hagaskóli og Háteigsskóli

Borgarhluti 4 - fimmtudaginn 22. janúar í félagsmiðstöðinni Fjörgyn
Kl. 19.30 Engjaskóli og Harmraskóli
Kl. 20.15 Borgaskóli og Foldaskóli


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000