20.01.2009
Upplestur á frétt
Nú er fyrstu umferð í spurningakeppni ÍTR fyrir grunnskólana í Reykjavík, Nema hvað? 2009, lokið. Alls tóku 25 skólar þátt. Fyrsta umferðin var æsispennandi þar sem úrslitin réðust oft á lokaspurningunum. Í annarri umferð eigast 16 skólar við í útsláttarkeppni og tryggja sigurvegarar sér rétt til að keppa um hverfismeistaratitill 2009.
Önnur umferð fer fram dagana 19.-22. janúar í félagsmiðstöðvunum Tónabæ, Árseli, 105 og Fjörgyn.
Borgarhluti 2 - mánudaginn 19. janúar í félagsmiðstöðinni TónabæKl. 19.30 Álftamýrarskóli og LangholtsskóliKl. 20.15 Réttarholtsskóli og Vogaskóli
Borgarhluti 3 - þriðjudagur 20. janúar í félagsmiðstöðinni ÁrseliKl. 19.30 Hólabrekkuskóli og ÁrbæjarskóliKl. 20.15 Seljaskóli og Ingunnarskóli
Borgarhluti 1 - miðvikudaginn 21. janúar í félagsmiðstöðinni 105 í HáteigsskólaKl. 19.30 Hlíðaskóli og TjarnarskóliKl. 20.15 Hagaskóli og Háteigsskóli
Borgarhluti 4 - fimmtudaginn 22. janúar í félagsmiðstöðinni FjörgynKl. 19.30 Engjaskóli og HarmraskóliKl. 20.15 Borgaskóli og Foldaskóli
Íþrótta- og tómstundasvið
HöfðatorgBorgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 5000