Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Langholtsskóli og Réttarholtsskóli komust áfram

20.01.2009

Upplestur á frétt 

Í gærkvöld fór fram önnur umferð í spurningakeppninni Nema hvað? í borgarhluta 2.

Í fyrri viðureigninni áttust við lið Álftamýrarskóla og Langholtsskóla. Fyrir hönd Álftó kepptu Arnar, Natan og Eðvarð og fyrir hönd Langó kepptu Máni, Kjartan og Skúli. Staðan eftir hraðaspurningar var 11-10 Langó og gríðarleg spenna í húsinu! Langó tók svo forystu eftir vísbendingaspurninguna og hélt henni allt til enda! Leikar fóru 22-16 fyrir Langó en bæði lið stóðu sig gríðarlega vel.
 
Seinni viðureign kvöldsins var á milli Réttarholtsskóla og Vogaskóla. Lið Réttó skipuðu Hrafnkell, Jakob og Hannes og fyrir Vogó kepptu Hjalti, Óli og Benedikt. Staðan eftir hraðaspurningar var staðan hnífjöfn 13-13! Vogó tók svo forystu eftir vísbendingaspurninguna en Réttó gáfust ekki upp og náðu að knýja fram sigur og lokastaðan var 23-20 fyrir Réttó!

Það verða því lið Langholtsskóla og Réttarholtsskóla sem keppa til úrslita um hverfismeistaratitil í borgarhluta 2 og sæti í undanúrslitum Nema hvað? 2009. Liðin munu mætast í Tónabæ mánudaginn 26. janúar kl. 20.00.

Lið Langholtsskóla
Lið Langholtsskóla

Lið Réttarholtsskóla
Lið Réttarholtsskóla

Lið Álftamýrarskóla
Lið Álftamýrarskóla

Lið Vogaskóla
Lið Vogaskóla


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000