Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Skíðasvæðin opna í dag

01.03.2010

Upplestur á frétt 

Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opnað í fyrsta sinn á þessum vetri í dag kl. 15.00 og verða lyftur opnar til kl. 21.00.

Nokkur vindur er á svæðinu en þó ekki það mikill til að geta ekki opnað. Við viljum biðja fólk að skíða/bretta aðeins innan merktra brauta því það er mjög grunnt sé farið utan þeirra. 

Þær leiðir sem verða opnar er Norðurleiðin (gamla öxlin), byrjendalyfta við Bláfjallaskála og diskalyftur á Suðursvæði. 

Rútan fer frá Olísplaninu í Mjódd kl. 16.15 í dag sem er nýr tími.

Viljum einnig vekja athygli á að hringja alltaf í símsvarann 530 3000 áður en lagt er af stað úr bænum þar sem aðstæður geta skyndilega breyst.

Göngubraut verður lögð kl. 16.00 um Leirurnar.

Skíðalyftur í Ártúnsbrekku og við Dalhús í Grafarvogi verða einnig opnar í dag kl. 16.00-19.00.

Nánari upplýsingar í síma 530 300 eða á www.skidasvaedi.is.


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000