Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Geitburður heldur áfram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

03.03.2010

Upplestur á frétt 

Geitburður heldur áfram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

 

Líkt og áður hefur komið fram hófst geitburður í Laugardalnum í Reykavík í fyrra fallinu  í ár þegar gráflekkótta huðnan Maðra bar hvítum hafri, Guðmundi 27. janúar síðast liðinn öllum að óvörum.  Huðnurnar Dís og Snotra hafa nú fylgt í kjölfar Möðru og báru báðar þann 1. mars og eru báðar tvíkiða.  Kiðlingarnir sem allir eru svartflekkóttir líkt og mæðurnar eru undan hafrinum Kletti sem er gráflekkóttur.  Burðurinn gekk hratt og vel fyrir sig og sinna huðnurnar nú móðurhlutverkinu vel en Klettur fylgist með úr hæfilegri fjarlægð. Fleiri huðnur munu væntanlega bera á næstu dögum og fer því að verða líflegra um að líta í fjárhúsinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. 

 

Geitburður í ár hefst á svipuðum tíma og í fyrra, sé Maðra frátalin, en þá hófst hann 5. mars.  Frjálsar ástir ríkja í geitastíunni en í kindastíunni er hrútnum hleypt til ánna í upphafi desember og má því búast við lömbum frá ánum eftir um það bil tvo mánuði.  

 

Meðgöngutími huðna er 149 dagar og þær eru ýmist einkiða eða tvíkiða. Mjög sjaldgæft er að þær verði þríkiða. Huðnurnar eru með tvo spena og mjólkin er ansi frábrugðin mjólk úr ám. Prófað hefur verið að venja lamb undir huðnu en það reyndist ekki vel því það þroskaðist hægar en undir venjulegum kringumstæðum.  Kiðin eru mjög fjörug og klifra, hoppa og skoppa mikið um og hafa litlar áhyggjur af hvar þau skildu við móður sína, annað en lömb sem geta vart séð af móður sinni.


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000