Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Myndlistaskóli Reykjavíkur sýnir í Gallerí Tukt

12.03.2010

Upplestur á frétt 

Laugardaginn 13. mars kl. 16:00 opnar sýning í Gallerí Tukt, á ljósmyndum, myndbandsverkum og hljóðverkum eftir nemendur af Myndlista- og- Hönnunarsviði Myndlistaskólans í Reykjavík.
Á Myndlista- og Hönnunarsviði undirbúa nemendur sig fyrir frekara listnám á háskólastigi og gefur sýningin góða nasasjón af vinnu þeirra úr ljósmyndaáfanga sem Erla Stefánsdóttir kenndi og úr vídeó og hljóðáfanga, sem myndlistarmennirnir Hilmar Bjarnason og Sigurður Guðjónsson kenndu.

Sýningaropnun er  milli kl. 16.00 – 18:00  þann 13. mars og í boði verða léttar veitingar.
Sýningin mun standa til 27. mars. Gallerí Tukt er opið frá kl. 9.00 - 17.00 alla virka daga en lokað um helgar.  Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000