Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Uppskera sumarstarfs unglinga

16.07.2010

Upplestur á frétt 

Uppskera sumarstarfs unglinga

Unglingar úr félagsmiðstöðinni Kampi buðu ættingjum og vinum upp á súpu síðasta vinnudaginn sinn og sýndu uppgerð húsgögn sem er afrakstur sumarstarfs unglinga á vegum ÍTR og Vinnuskólans. Í sumar hafa félagmiðstöðvahópar verið starfræktir í öllum hverfum borgarinnar en þeir hafa m.a. að markmiði að auðga mannlífið í hverfinu sínu og sjálfa sig í leiðinni:)


Starfið hefur verið afar fjölbreytt en unglingar í Kampi skiplögðu meðal annars fáránleikakeppni fyrir 10-12 ára í hverfinu sínu, heimsóttu eldri borgara og buðu upp á hnallþórur, kaffi, upplestur og gítarspil. Einnig skipulögðu þau félagsmiðstöðvadagskrá fyrir unglinga. Eins var ýmislegt sér til gaman gert og átti hópurinn ógleymanlegar stundir út á sjó, á kajak, á árabátum, við að veiða, stökkva úr togara út í Atlantshafið svo eitthvað sé nefnt. Endilega kíkið á myndirnar af sýningunni og sumrinu á heimasíðunni http://www.kampur.is/ !


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000