Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Sundvaka í Laugardalslaug

20.07.2010

Upplestur á frétt 

Borgaryfirvöld hafa ákveðið að efna til sundvöku í Laugardalslauginni dagana 21.-26. júlí næstkomandi.

Á samráðsvettvanginum Betri Reykjavik kom fram sú hugmynd að hafa sólarhringsopnun í einni sundlaug í Reykjavík. Mikill stuðningur var við tillöguna og því ákváðu borgaryfirvöld að gera tilraun með sundvöku í Laugardalslaug í eina viku.

Á sundvökunni verður Laugardalslaugin opin í  fimm nætur frá og með miðvikudeginum 21. júlí frá kl. 6.30 til mánudagsins 26. júlí til kl. 22.30.

Gjald fyrir sundgesti á sundvöku er 1.000 krónur en þess ber að geta að afsláttar- og árskort gilda. Börn yngri en 16 ára fá ekki aðgang á nóttunni nema í fylgd með fullorðnum og er það í samræmi við útivistarreglur barna í borginni.

Borgaryfirvöld vonast til að sundlaugargestir noti þetta einstaka tækifæri sem nú gefst til þess að fara í sund á björtum sumarnóttum. Svo gæti farið, ef vel tekst til, að sundvakan yrði að árlegum viðburði. Rétt er að taka fram að öll meðferð áfengis er að venju stranglega bönnuð í lauginni.

 


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000