Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Makríll í Sjávardýrasafni Fjölskyldu- og húsdýragarðsins

21.07.2010

Upplestur á frétt 

Veiði landsmanna á makríl hefur verið mikið í fréttum undanfarið þar sem fólk á öllum aldri stendur á bryggjusporðum og hreinlega mokar honum inn. Makríllinn sem er hraðsyntur uppsjávarfiskur ferðast í stórum torfum nálægt landi og yfirborði í leit að æti yfir sumartímann. Á veturna halda torfurnar sig aftur á móti á meira dýpi og fjær landi.

Starfsmenn Sjávardýrasafns Fjölskyldu- og húsdýragarðsins fóru á veiðar á dögunum og má nú sjá nokkra fallega makríla á sundi í einu búra safnsins. Þar syndir hann hring eftir hring á mikilli ferð enda er hann sundmagalaus og sekkur ef hann heldur sér ekki á stöðugri ferð.


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000