Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Vel heppnað sumarstarf hjá 10-12 ára

26.07.2010

Upplestur á frétt 

Í sumar var í fyrsta skipti boðið upp á 10 - 12 ára starf í öllum hverfum borgarinnar.

Frístundamiðstöðin Gufunesbær byrjaði með þetta starf sumarið 2009 og er því að bjóða upp á slíkt starf í annað sinn. Eftir reynslu síðust tveggja sumra þykir ljóst að þetta starf er komið til að vera. 

Í Grafarvoginum var boðið upp á 39 fjölbreyttar smiðjur með pláss fyrir 876 börn. Þátttakan var vægast sagt góð en 627 pláss voru nýtt eða 72%. Vinsælasta smiðjan var veiðiferð en alls voru 20 krakkar á biðlista sem því miður komust ekki með. Aðrar vinsælar smiðjur voru t.d. brjóstsykursgerð, útilega, stuttmyndagerð og hellaskoðun en þar voru að meðaltali um 10 börn á biðlista. Starfsfólk 10-12 ára starfsins í Gufunesbæ var afar ánægt með móttökurnar og þakkar fyrir frábært sumar.

Myndir af 10-12 ára starfinu í Gufunesbæ má nálgast á www.gufunes.is - Sumarstarf 10-12 - Myndir 2010 og einnig er að finna myndir af starfinu í Kringlumýri á www.kringlumyri.is - Sumarstarf fyrir 10-12 ára - Myndir.


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000