07.09.2010
Upplestur á frétt
Miðvikudaginn 8. september verður mikið um að vera í Nauthólsvík. SJÓR (Sjósund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur) mun gera sér glaðan dag og hafa veislu á kvöldopnunartíma Nauthólsvíkur.Þá koma allir þeir sem vilja með köku, kex, ávexti eða hvað sem er til að leggja á hlaðborð.Þetta var gert í vor og tókst mjög vel.
Keppt verður í sjódýfingum og er þetta fyrsta opna mótið sem fram fer með þessum hætti. Það er Sjór (Sjósund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur) sem stendur fyrir mótinu. Stokkið verður fram af klettinum og lent í haffletinum sem mun verða nálægt stórstraumsflóði. Keppt er í opnum flokki og öll kyn, öll þjóðerni, allur aldur og öll getustig eru gjaldgeng til keppni. Skráning verður á staðnum.Tímasetning: Keppni hefst kl. 17:20 og áætlað að ljúki fyrir 18:20
Keppnisfyrirkomulag : Hver keppandi má gera 1 – 3 stökk. Aðeins besta stökk telst til verðlauna. Erfiðleiki stökksins, útfærsla í flugi og niðurkoma verða metin í samræmi við Dýfingareglur FINA.Dómarar:Fulltrúi Flugmála: Magnús Pálsson (mun dæma flugfasa stökksins)Fulltrúi Hafrannsókna: …. (mun dæma niðurkomu í hafið)Fulltrúi Sundsambands: Jónas Tryggvason (mun dæma erfiðleika og stíl)Skipulag og eftirlit: SJÓR, Sjósunds og sjóbaðsfélag ReykjavíkurDýfinganefnd SSÍ.
Sjá nánar á http://www.nautholsvik.is/desktopdefault.aspx
Íþrótta- og tómstundasvið
HöfðatorgBorgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 5000