Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

ÍTR - Torgið "Ungt fólk til athafna"

07.09.2010

Upplestur á frétt 

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur og Vinnumálastofnun hafa tekið höndum saman um að bjóða ungum atvinnuleitendum að taka þátt í virkni-verkefnum sem starfrækt verða af ÍTR. Undir merkjum átaksins „Ungt fólks til athafna“  mun ÍTR nú bjóða upp á virkninámskeið sem byggja á fræðslu og vinnustaðanámi í íþrótta- og æskulýðsgeiranum, fyrir aldurshópinn 18-29 ára. 

ÍTR-Torgið er sá heildræni vettvangur sem tekur á móti atvinnuleitendum í verkefnið, heldur utan um þá meðan á verkefninu stendur og útskrifar þátttakendurna að 8 vikum liðnum.  Áhugasamir sækja um hjá ráðgjöfum „Ungs fólks til athafna“.

1.  Virkni-verkefnið hefst á vikulöngu námskeiði á ÍTR-Torginu. Þar er fjallað um vinnustaðanám, smiðjur, hópefli og unnið með reynslu og þarfir þátttakenda. 
2.  Síðan tekur við 6 vikna vinnustaðanám á starfstöðum ÍTR. Einnig verður boðið upp  áhugaverðar kynningar, fræðslu og smánámskeið á Torginu.
3.  Verkefninu lýkur með vikulöngu námskeiði á ÍTR-Torginu.  Hópurinn deilir reynslu af vinnustaðanáminu, fær kynningar á virkni-úrræðum sem í boði eru og horft verður til framtíðar.
Virkni-verkefnið „ÍTR-Torgið“ stendur í átta vikur og er samtals 200 stundir.  Þátttakendum bjóðast 6 leiðir í vinnustaðanámi; 3 í almennri starfsemi ÍTR með börnum, unglingum og á sundstöðum, og 3 leiðir í vinnustofum eða smiðjum. 
ÍTR-Torgið tekur á móti tveimur hópum á þessu ári og hefjast verkefnin
4. október og 1. nóvember.

Kynningarfundur verður í frístundamiðstöðinni Miðbergi fimmtudaginn 9. september kl. 10.30.

ÍTR -Torgið - smiðjur
ÍTR -Torgið - módel


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000