Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fréttir

Hvatningarverðlaun frístundaheimila ÍTR afhent í fyrsta sinn

09.09.2010

Upplestur á frétt 

Jón Gnarr, borgarstjóri, mun afhenda Hvatningarverðlaun Frístundaheimila á morgun þann 10. september.
Hvatningarverðlaunin eru nú afhent í fyrsta sinn og er markmið þeirra að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fram fer á frístundaheimilunum, veita starfsfólki frístundaheimila hvatningu og stuðla að auknu nýbreytni- og þróunarstarfi.
Hvatningarverðlaunin koma að þessu sinni í hlut tveggja frístundaheimila og eins verkefnisstjóra.

Jón Gnarr, borgarstjóri, mun heimsækja frístundaheimilin og afhenda verðlaunin. Börnin og starfsfólkið munu efna til hátíðar í tilefni verðlaunanna og boðið verður upp á söng og aðra skemmtun?

Athafnirnar verða kl. 14:00 í Húsaskóla (Kastali), kl. 14:45 í Háteigsskóla (Frístund) og kl. 15:30 í Frostheimum.
Fjölmiðlar eru velkomnir.
 


Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000