06.12.2011
Upplestur á frétt
Í vikunni voru sett upp tæki í Sundhöll Reykjavíkur til framleiðslu á klór úr matarsalti með rafgreiningu. Framleiðslukostnaður er um þriðjungur af kostnaði aðflutts klórs auk þess að vera mun umhverfisvænni og öruggari kostur.
Aðfluttur klór hefur í sér vítissóda sem að þessi klór hefur ekki nema að mjög litlu leyti, einnig þarf ekki að geyma klór á staðnum heldur er hann framleiddur jafn óðum og þörf er á. Með þessu minnkar klórlykt til muna og bætir loftgæði og öryggi starfsmanna og gesta. Samskonar tæki hefur verið í Laugardalslaug frá árinu 2008 og hefur reynst vel.
Upplýsingar um frekari framkvæmdir í sundlaugum Reykjavíkur má sjá hér.
Íþrótta- og tómstundasvið
HöfðatorgBorgartún 12-14105 ReykjavíkSími 411 5000