Jólakötturinn 2011 valinn um helgina
09.12.2011
Upplestur á frétt 
Komandi helgi 10. og 11. desember munu félagar í Kynjaköttum, Kattaræktarfélagi Íslands mæta í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með ketti sína og standa fyrir sýningu.Á sýningunni er gestum boðið að velja Jólaköttinn 2011.Þá verður opið í Jólahringekjunni og lestinni (ef færð leyfir) frá klukkan 13:00 til 16:00 auk þess sem hægt verður að bregða sér í hestvagnaferð frá klukkan 14:00 til 15:00 í ríflega aldrargömlum jólaskreyttum hestvagni sem dreginn er af hryssunni Dagvöru.
Í Hafrafelli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er að finna virðulegt par frá Afríku en sjálfur konungur dýranna er þar mættur ásamt spúsu sinni.Ljónaparið, sem vert er að nefna að er uppstoppað, kemur úr einkasafni og verður til sýnis fram á nýja árið enda vel til fundið að sýna þennan skyldkött jólakattarins í tengslum við veru þess síðarnefnda í garðinum.
Segja má að sjálfur jólakötturinn njóti góðs af eigin prakkarastrikum þessa dagana í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.Þannig fór nefnilega að næturverðir garðsins gerðu fyrir jólaköttinn heldur hryssingslegan kofa og bæli í Hafrafelli sem er við refagirðinguna, enda voru þeir orðnir þreyttir á stríðni kattarins og ónæði.Þar dvelur jólakötturinn á daginn og virðist sofa en draumfarir hans eru slíkar að oft eru mikil læti við bæli hans.En ófétið virðist komast út að nóttu til og hrellir þá dýr garðsins og gesti Laugardalsins.Hugrakkir gestir geta heimsótt jólaköttinn í bæli sínu á opnunartíma en verða að gæta þess að styggja hann ekki því ómögulegt er að vita hvað hann tekur upp á næstu nótt.Hátt í 500 leik- og grunnskólakrakkar hafa nú þegar heimsótt bæli jólakattarins það sem af er desember og hafa viðbrögðin verið af ýmsum toga en þeim þykir heimsóknin að mestu spennandi.
Stóðhesturinn Þristur frá Þorlákshöfn mætir til vetrardvalar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn sunnudaginn 11. desember og mun að öllu óbreyttu dvelja fram á vor.Þristur er brúnskjóttur á 11. vetri undan Randver frá Nýjabæ og Koltinnu frá Þorlákshöfn.Svo skemmtilega vill til að samfeðra Þristi er jarpvindótta hryssan Gola sem býr í garðinum en móðir hennar er Dagvör, sú sem dregur hestvagninn.
Opið er alla daga frá klukkan 10 til 17 og hægt er að kíkja í heimsókn í Hafrafell á opnunartíma.Önnur dagskrá svo sem fóðrunartímar dýranna má sjá á
www.mu.is.Nágrannar okkar hér í jóladalnum Laugardal eru líka með mjög spennandi dagskrá í desembermánuði.Sjá heimasíður Grasagarðsins,
www.grasagarður.is og Skautahallarinnar
www.skautaholl.is.