Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Frístundakortið

Frístundakortið

Frístundakort – styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík

Markmið og tilgangur Frístundakortsins er að öll börn og unglingar í Reykjavík 6-18 ára geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Frístundakortinu er ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu og fjölbreytileika í iðkun íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi.

Meginskilyrði félaga sem gerast aðilar að Frístundakortinu er að starfsemin sé á forsendum uppeldislegar gilda og forvarna í víðum skilningi. Starfsemin fari fram undir leiðsögn hæfra starfsmanna og leiðbeinanda sem hæfir starfi með börnum og unglingum. Styrkhæf starfsemi þarf að vera í 10 vikur samfellt hið minnsta.

Styrkurinn er kr. 25.000 á barn á ári en ekki er um beingreiðslur til forráðamanna að ræða, heldur hafa þeir rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til niðurgreiðslu á þátttöku- og æfingagjöldum.

Innheimta aðildarfélaga er með ýmsum hætti og er mikilvægt að forráðamenn kynni sér hvernig innheimtu er háttað hjá aðildarfélagi síns barns. Félögum er heimilt að ákveða sjálf lokadag ráðstöfunar á hverri önn svo hægt sé að ganga frá innheimtu eftirstöðva séu þær einhverjar.
Ekki er heimilt að flytja styrkinn á milli ára. 

Frekari upplýsingar um kortið s.s. reglur og skilyrði, umsóknir félaga og leiðbeiningar fyrir félög og forráðamenn má finna hér til hægri á síðunni.

Frístundakortið