Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Músíktilraunir

Músíktilraunir

Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í eina viku. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þáttöku með því að senda inn umsókn á netinu og greiða þátttökugjald. Undankvöld fara svo fram (4-5 kvöld) þar sem 40-50 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið.

Um 10-12 hljómsveitir fara venjulega í úrslit. Fyrstu 3 sveitirnar hljóta síðan glæsileg verðlaun af ýmsum toga. Einnig eru efnilegustu / bestu hljóðfæraleikararnir valdir og vinsælasta hljómsveit meðal áhorfenda /hlustenda kosin með símakosningu.

Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt, auk þess sem að sjónvarpið hefur tekið það upp og sýnt síðar.

Hitt Húsið stendur nú að skipulagningu Músíktilrauna og býr þeim glæsilega umgjörð hvort sem litið er til húsnæðis, starfsfólks eða tæknilega hlutans.

Að taka þátt í Músíktilraunum er frábær upplifun og ómetanleg reynsla fyrir upprennandi og skapandi tónlistarfólk.




English Español Polski Thai