Starfið

Frístundaheimilin hafa fjölbreytta dagskrá sem einkennist jafnt af skipulögðum sem og frjálsum leik. Leitast er við að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnunum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf þeirra. Innra starf frístundaheimilanna, svo sem dagskrá, viðfangsefni og samstarf við utanaðkomandi aðila fer eftir aðstæðum á hverjum starfstað fyrir sig. Frístundaheimilin taka víða þátt í hverfasamstarfi, svo sem við íþróttafélög og kirkju, til að auka á fjölbreytni í starfseminni.