Húsnæði

Gert er ráð fyrir að frístundaheimilin séu staðsett í húsnæði skólanna, þar sem því verður við komið og hafi eina heimastöð, svokallað ,,hjarta" frístundaheimilisins. Einnig er leitast við að hafa samráð í hverjum skóla fyrir sig um samnýtingu á húsnæði sem ekki er í notkun hverju sinni, s.s. sérgreinastofur, íþróttasal, hátíðarsal o.s.frv.