Foreldrasamstarf

Á frístundaheimilunum er lögð áhersla á að foreldrasamstarf sé virkt og ánægjulegt. Ein meginforsenda þess að börnunun líði vel er að aðstandendur og starfsmenn séu samstilltir og samtaka. Verkefnisstjórar frístundaheimilanna sinna undirbúningi fyrir hádegi og eru foreldrar beðnir um að nýta sér þann tíma til að ræða við verkefnisstjórana.
Hvert frístundaheimili er með eigin heimasíðu, þar sem reglulega eru settar inn myndir, fréttabréf og vikudagskrá. Þar er einnig hægt að nálgast helstu upplýsingar um starfið og starfsfólkið á hverjum starfsstað. Tengla á heimasíður frístundaheimilanna er að finna á hér á síðunni. Auk þess er kallað til foreldrafunda og haldin eru opin hús fyrir foreldra og börn.