Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Umsóknir

Umsóknir

Sótt er um dvöl á frístundaheimili á rafrænu formi í Rafrænni Reykjavík

Skráning fyrir skólaárið 2011-2012 hefst 7. febrúar 2011.

Ef viðkomandi hefur ekki stofnað sína síðu í Rafrænu Reykjavík, skráir hann kennitölu sína undir NÝSKRÁNING og smellir á Áfram. Þá þarf að gefa upp netfang og senda það.  Eftir skamma stund kemur tölvupóstur á það netfang með nafni og lykilorði sem notað er til að skrá sig inn. Heppilegt er að breyta lykilorðinu í eitthvað sem auðvelt er að muna. Það er gert inni á Rafrænni Reykjavík.

Til að sækja um frístundaheimili fyrir barn á að velja Umsókn um frístundaheimili og fylla hana út eftir þeim leiðbeiningum sem kom fram á skjánum.

Ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið á frístundamiðstöðvar (helst fyrir hádegi) og á þjónustumiðstöðvar hverfanna og fengið aðstoð með skráningu. Ekki er hægt að skrá börn á frístundaheimili í gegnum síma. Þjónustumiðstöðvar, frístundamiðstöðvar og Símaver Reykjavíkurborgar (s. 411 1111) geta þó leiðbeint símleiðis ef forráðamenn eru við nettengda tölvu.

Ekki er hægt að tryggja öllum börnum dvöl í frístundaheimili fyrr en tekist hefur að manna stöður frístundaleiðbeinenda/ráðgjafa. Umsóknum verður raðað eftir því hvenær þær berast.

Hægt er að segja upp dvöl á frístundaheimili á Rafrænni Reykjavík, en einnig með því að fylla út eyðublaðið hægra megin á síðunni og koma því til umsjónarmanns frístundaheimilisins.



Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000