Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Um ÍTR

Um ÍTR

Möguleikar íbúa Reykjavíkurborgar til skemmtilegrar frístundaiðju eru afar miklir og ættu allir aldurshópar að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. ÍTR leggur áherslu á miðla á einfaldan hátt upplýsingum um slíka starfsemi, hvort sem hún er á vegum ÍTR eða annarra borgarstofnana. Sérstök áhersla er lögð á að kynna möguleika barna og unglinga í hverfum borgarinnar.

Í hverfum borgarinnar veitir ÍTR margskonar þjónustu sem snýr að frítíma borgarbúa. Þar eru meðal annars sundlaugar, íþróttamiðstöðvar, hjólabrettagarðar, gervigrasvellir og sparkvellir. Af starfsemi sem síður er hverfisbundin má nefna Hitt Húsið, Ylströndina, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og skíðasvæðin.

ÍTR sinnir víðtæku samstarfi við hagsmunaaðila í íþrótta- og æskulýðsstarfi, veitir styrki til félaga og styrkir þátttöku barna og unglinga í starfsemi þeirra með Frístundakortinu.




English Español Polski Thai