Árbær, Grafarholt og Norðlingaholt
Frístundamiðstöðin Ársel
v/ Rofabæ, 110 Reykjavík
Sími: 567 1740
Fax: 567 1783
Netfang: arsel@itr.is
Heimasíða: www.arsel.is
Sundlaug
Árbæjarlaug v/Fylkisveg, 110 Reykjavík, Sími: 411 5200
Afgreiðslutími: Virka daga - 6:30-22:30, helgar - 8:00-22:00
Netfang: arbaejarlaug@itr.is
Hlaupakort Árbæjarlaugar
Útivistasvæði
Elliðaárdalur liggur á milli Elliðavogs og Elliðavatns. Elliðaárnar, sem oft eru nefndar Perla Reykjavíkur, falla úr Elliðavatni; kvíslast um miðbik dalsins og renna í tveimur kvíslum til sjávar. Elliðaárdalurinn er afar fagur dalur og þar er fjölskrúðugt náttúrufar. Í dalnum er fjölbreytt fuglalíf og áin geymir nokkrar tegundir fiska. Göngu- og hjólastígar gera þér kleift að kanna þá endalausu möguleika sem leynast í þessu frábæra útivistarsvæði. Þriggja kílómetra langur fræðslustígur liggur um dalinn og meðfram honum er að finna margvíslegar upplýsingar um náttúru og sögu Elliðaásdals.
Tilvalið að: Skokka, hjóla, fara í stafagöngu, fuglaskoðun og telja fuglategundir á svæðinu.
Heiðmörk er stærsta útivistasvæði í nágrenni höfuðborgarinnar. Heiðmörk er mjög fjölbreytt útivistarsvæði, þar eru göngustígar sem spanna um 40 km og liggja frá Norðlingaholti út að Maríuhellum. Auk þess er þar afar fjölbreytt fuglalíf sem og spennandi flóra sem gaman er að kanna. Furulundur er sérstaklega skemmtilegur fyrir börn, þar er blakvöllur og leiktæki.
Tilvalið að: Skokka, hjóla, fara í stafagöngu, hlaupa með flugdreka og fara í fuglaskoðun og telja fuglategundir á svæðinu.
Björnslundur
Útivistar svæði við Norðlingaskóla. Flóran í Björnslundi er ótrúlega fjölbreytt, miðað við að hún er inni í lundi sem staðsettur er í miðju íbúðahverfi.
Einn vinsælasti staðurinn í Björnslundi er eldstæðið. Þar er hægt að fá sér heitt kakó og jafnvel eitthvað í gogginn.
Tilvalið að: Fara í hjólreiðatúr og tína sýnishorn af hinum ýmsum plöntum ,þurrka þær og leita síðan upplýsinga um hvaða plöntur þetta eru og hvað er sérstakt við þær. Einnig er tilvalið að fara í fuglaskoðun og telja fuglategundir á svæðinu, taka með sér nesti og njóta náttúrunnar.
Sparkvellir: Við Fylkisvöll
Smíðavellir: Við frístundamiðstöðina Ársel og við Kirkjustétt
Skólagarðar: Árbær vestan Árbæjarsafns, s. 587 0014
Göngu og hjólastígar: Skjámynd
Söfn
Bókasafn
Ársafn, Hraunbæ 119, s. 557 7119, arsafn@borgarbokasafn.is
Árbæjarsafn er útisafn og auk Árbæjar eru þar yfir 20 hús, sem mynda torg, þorp og sveit. Flest húsin hafa verið flutt úr miðbæ Reykjavíkur. Í Árbæjarsafni er leitast við að gefa mynd af byggingalist og lifnaðarháttum í Reykjavík. Í safninu er boðið upp á fjölda sýninga og viðburða, þar sem einstökum þáttum í sögu Reykjavíkur eru gerð skil. Þar má nefna handverksdaga, fornbílasýningu, jólasýningu og margt fleira. Allir eiga að finna eitthvað við sitt hæfi í Árbæjarsafni.
Opnunartími- 31. maí-31. ágúst. Opið frá kl. 10:00-17:00.
Leiðsögn mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13:00. Tekið á móti hópum eftir samkomulagi.
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur er til húsa við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal, gegnt gömlu Elliðaárstöðinni. Minjasafnið er í senn byggðasögusafn og eitt fárra tækniminjasafna landsins. Þar eru varðveittir hvers kyns gripir er tengjast sögu veitufyrirtækja Reykjavíkur í tæpa öld og hafa því mikið gildi fyrir atvinnusöguna. Rafmagn, hiti og hreint vatn skiptu sköpum fyrir þróun Reykjavíkur frá bæ í borg, auk þess að lífskjör og heilbrigði íbúa tóku stakkaskiptum.
Opnunartími: september til 17. júní; sunnudaga kl. 15:00-17:00. 18. júní til 30. ágúst; þriðjudaga til sunnudaga kl. 13:00-17:00. Þá er einnig tekið á móti gestum eftir nánara samkomulagi við safnvörð í s. 567 9009.