Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Breiðholt

Frístundamiðstöðin Miðberg
Gerðubergi 1, 111 Reykjavík
Sími: 411 5750
Gsm: 695 5030
Fax: 557-9130
Netfang: midberg@itr.is
Heimasíða: www.midberg.is

Sundlaug
Breiðholtslaug v/Austurberg, 111 Reykjavík, Sími: 557 5547
Afgreiðslutími: Virka daga - 6:30-22:00 og helgar - 8:00-20:00


Útivistarsvæði

Elliðaárdalur liggur á milli Elliðavogs og Elliðavatns. Elliðaárnar, sem oft eru nefndar Perla Reykjavíkur, falla úr Elliðavatni; kvíslast um miðbik dalsins og renna í tveimur kvíslum til sjávar. Elliðaárdalurinn er afar fagur dalur og þar er fjölskrúðugt náttúrufar. Í dalnum er fjölbreytt fuglalíf og áin geymir nokkrar tegundir fiska. Göngu- og hjólastígar gera þér kleift að kanna þá endalausu möguleika sem leynast í þessu  frábæra útivistarsvæði. Þriggja kílómetra langur fræðslustígur liggur um dalinn og meðfram honum er að finna margvíslegar upplýsingar um náttúru og sögu Elliðaásdals.
Tilvalið að: Skokka, hjóla, fara í stafagöngu, fuglaskoðun og telja fuglategundir á svæðinu.

Heiðmörk er stærsta útivistasvæði í nágrenni höfuðborgarinnar. Heiðmörk er mjög fjölbreytt útivistarsvæði, þar eru göngustígar sem spanna um 40 km og liggja frá Norðlingaholti út að Maríuhellum. Auk þess er þar afar fjölbreytt fuglalíf  sem og spennandi flóra sem gaman er að kanna. Furulundur er sérstaklega skemmtilegur fyrir börn, þar er blakvöllur og leiktæki.
Tilvalið að: Skokka, hjóla, fara í stafagöngu, hlaupa með flugdreka og fara í fuglaskoðun og telja fuglategundir á svæðinu.

Brettagarðar: Við Jafnarsel
Sparkvellir: Við íþróttahúsið í Austurbergi
Smíðavellir: Við Miðberg og við Hólmasel
Skólagarðar: Jaðarsel austan Jöklasels s. 587 0024 og Stekkjarbakki í Elliðaárdal s. 588 4998
Göngu og hjólastígar: Skjámynd


Söfn

Bókasöfn
Gerðubergssafn, Gerðubergi 3-5, s. 557 9122, gerduberg@borgarbokasafn.is
Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 587-3320

Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur er til húsa við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal, gegnt gömlu Elliðaárstöðinni. Minjasafnið er í senn byggðasögusafn og eitt fárra tækniminjasafna landsins. Þar eru varðveittir hvers kyns gripir er tengjast sögu veitufyrirtækja Reykjavíkur í tæpa öld og hafa því mikið gildi fyrir atvinnusöguna. Rafmagn, hiti og hreint vatn skiptu sköpum fyrir þróun Reykjavíkur frá bæ í borg, auk þess að lífskjör og heilbrigði íbúa tóku stakkaskiptum.
Opnunartími: september til 17. júní; sunnudaga kl. 15:00-17:00. 18. júní til 30. ágúst; þriðjudaga til sunnudaga kl. 13:00-17:00. Þá er einnig tekið á móti gestum eftir nánara samkomulagi við safnvörð í s. 567 9009.




English Español Polski Thai