Grafarvogur og Kjalarnes
Frístundamiðstöðin Gufunesbær
v/ Gufunesveg, 112 Reykjavík
Sími: 520 2300
Fax: 520 2319
Netfang: gufunes@gufunes.is
Heimasíða: www.gufunes.is
Sundlaug
Grafarvogslaug v/Dalhús, 112 Reykjavík, Sími: 510 4600
Afgreiðslutími: Virka daga - 6:30-22:30 og helgar - 8:00-20:30
Útivistarsvæði
Fjölnota útivistarsvæði í Gufunesi
Hlaðan í Gufunesbæ - fjölnota salur
Við Gufunesbæ er gömul hlaða sem búið er að gera upp og er nú nýtt sem fjölnota salur fyrir hinar ýmsu uppákomur. Hægt er að leigja hlöðuna fyrir fjölskylduskemmtanir m.a. barnaafmæli en einnig geta félagasamtök og aðrir hópar fengið afnot af aðstöðunni. Í hlöðunni er salur, setustofa og lítið eldhús. Fullkomið hljóð- og myndkerfi er í hlöðunni. Fyrir framan hlöðu er útipallur og grill sem hóparnir geta fengið afnot af.
Klifurturninn
Við hlöðuna er staðsettur gamall súrheysturn sem nýttur er fyrir veggjaklifur og ísklifur þegar aðstæður leyfa. Turninn er 13 metra hár og eru veggjaklifurleiðir bæði innan sem og utan á turninum.
Skólar, foreldrafélög, íþróttafélög og önnur félagasamtök eða hópar geta fengið að koma og spreyta sig í veggjaklifrinu gegn vægu gjaldi. Allur klifur- og öryggisútbúnaður er til staðar. Starfsfólk Gufunesbæjar tekur á móti hópunum og leiðbeinir.
Á veturna þegar kalt er í veðri og aðstæður leyfa er vatni hleypt utan á turninn og ísfoss látinn myndast. Þeir sem klifra í turninum verða að fara eftir settum reglum Gufunesbæjar.
Strandblaksvellir
Á útvistarsvæðinu við Gufunesbæinn er fullkomin strandblaksaðstaða. Um er að ræða þrjá velli. Hægt er að panta vellina gegn vægu gjaldi hjá frístundamiðstöðinni Gufunesbæ og fá þeir hópar sem panta forgang á vellina. Annars er bara hægt að koma á svæðið og nýta vellina ef þeir eru lausir.
Frisbígolf
18 holu frisbígolfvöllur er staðsettur á útivistarsvæðinu sem gaman er að prófa. Tilvalið er fyrir einstaklinga, fjölskyldur og stærri hópa að koma og reyna fyrir sér í þessum skemmtilega leik. Ef um stærri hópa er að ræða þarf að panta völlinn og fá frisbídiska hjá starfsfólki Gufunesbæjar.
Hjólabrettasvæði
Hjólabrettaáhugamönnum gefst kostur á að æfa sig á hjólabrettasvæði sem staðsett er sunnan við Gufunesbæinn. Um er að ræða nokkra tilbúna hjólabrettarampa en í framtíðinni er áætlað að útbúa fullkomin hjólabrettagarð á svæðinu.
Upplýsingar um útivistarsvæðið
Til að fá upplýsingar um útivistarsvæðið og möguleika þess er hægt að hafa samband við starfsfólk Gufunesbæjar í síma 520 2300 eða senda póst á netfangið gufunes@gufunes.is.
Fjaran við Grafarvoginn
Falleg strandlengja liggur eftir Grafarvogum. Fjaran er kjörin til að eyða góðum degi. Muna að taka með sér : fötur,skóflur og ílát til að safna saman skeljum, steinum og öðrum fjársjóðum.Hægt að fara í fuglaskoðun og telja fuglategundir á svæðinu.
Korpúlfsstaðir er jörð í Reykjavík kennd við Korpúlf bónda sem getið er í Kjalnesinga sögu. Jörðin varð eign Viðeyjarklausturs á miðöldum og síðan konungseign. Thor Jensen eignaðist jörðina árið 1922 og reisti þar núverandi hús og fullkomið mjólkurbú sem lagðist af vegna mjólkursölulaganna 1934. Reykjavíkurborg keypti eignina af Thor árið 1942. Húsnæðið var notað sem geymsla, meðal annars fyrir málverk í eigu borgarinnar. Mikið skemmdist þar í bruna 18. janúar 1969. Korpuskóli var á Korpúlfsstöðum frá 1999 - 2005. Í þeim hluta sem skólinn var starfræktur eru nú vinnustofur listamanna ásamt aðstöðu til myndlistarkennslu. Þar er nú aðsetur fyrir listamenn. Við Korpúlfsstaði er 18 holu golfvöllur og 9 holu æfingavöllur.
Fjörefli - paintball í Gufunesi
Fjörefli býður uppá fjölbreytta afþreyingu á nýju svæði í Skemmtigarðinum í Grafarvogi þar sem aðaláherslan er lögð á hópefli, útivist og skemmtun. Helstu viðskiptavinir garðsins eru fyrirtæki, félagasamtök, ferðaskipuleggjendur, skólar, fjölskyldur og einstaklingar á öllum aldri. Þjónustan er sniðin eftir þörfum hvers hóps og er mikið lagt upp úr mismunandi valmöguleikum þannig að allir finni sér eitthvað við sitt hæfi.
Egilshöll
Hér er hægt að finna afþreyingu fyrir alla fjölskylduna: skauta, keilu og bíó.
Fossaleyni 1, 112 Reykajvík, s: 594 9600 , www.egilsholll.is
Smábílaklúbburinn í Gufunesi
Félagið Smábílaklúbbur Íslands (SBKI) var stofnað 1995 af nokkrum áhugamönnum um kappakstur á fjarstýrðum bílum og hefur það starfað óslitið frá upphafi. Það eru um 60 einstaklingar skráðir í félagið. Félagsmenn eru allt frá 8 ára gamlir til fimmtugs. Nánari upplýsingar sbki@sbki.is
Sparkvellir: Í Rimahverfi, Hamrahverfi og Staðahverfi
Smíðavellir: Við Engjaskóla og við Foldaskóla
Skólagarðar: Foldahverfi austan Logafoldar, s. 567 6657
Göngu og hjólastígar: Skjámynd
Söfn
Bókasafn
Foldasafn, Grafarvogskirkju við Fjörgyn, s. 411 6230, foldasafn@borgarbokasafn.is