Laugardalur og Háaleiti
Frístundamiðstöðin Kringlumýri
Safamýri 28, 108 Reykjavík
Sími: 411 5400
Gsm: 695 5067
Fax: 411 5419
Netfang: kringlumyri@itr.is
Heimasíða: www.kringlumyri.is
Sundlaug
Laugardalslaug v/Sundlaugarveg, 104 Reykjavík, Sími: 411 5100
Afgreiðslutími: Virka daga - 6:30-22:30 og helgar - 8:00-22:00
Útivistarsvæði
Grasagarður Reykjavíkur í Laugardalnum nýtur sívaxandi vinsælda borgarbúa. Æ fleiri leita ókeypis kyrrðarstunda í garðinum . Grasagarður Reykjavíkur er safn lifandi plantna og þurrkaðra tegunda. Þar er lögð stund á fræðslustarfsemi og rannsóknir á sviði grasafræði, garðmenningar og garðyrkju. Tegundir planta og yrki eru um það bil 5000. Á sumrin er Café Flóra starfrækt í garðskálanum og þar er boðið upp á ljúffengar veitingar. Opið kl. 10:00-22:00 alla daga frá maí til september. Sími 553 8872
Tilvalið að: Ganga um garðinn og skoða gróðurinn. Fá sér kaffi á Café Flóra eða taka með sér nesti og setjast í garðinn.
Fjölskyldu og húsdýragarðurinn
Hér er að finna öll helstu húsdýr sem lifa á Íslandi og ýmisd villt dýr, s.s. hreindýr, refi og minka. Hægt er að kynnast heimi vísindanna í vísindaveröldinni sem og skoða flestar fisktegundir sem lifa í kringum Ísland. Í fjölskyldugarðinum er hægt að finna hin ýmsu leiktæki og á sumrin er hægt að fara í tívolítæki og út á báta. Garðurinn er á Hafrafelli v/Engjaveg, 104 Reykjavik, s. 575 7800. Opið alla daga kl. 10:00-17:00.
Tilvalið að: Taka með sér nesti, ganga um garðinn, fara í leiktækin, skoða dýrin og gleyma sér í vísindaveröldinni.
Þvottalaugarnar voru heitar laugar sem notaðar voru til þvotta af húsmæðrum og vinnukonum í Reykjavík frá því að þéttbýli myndast og allt fram á 20. öld. Þær voru staðsettar í Laugamýri sem var í landi hins forna býlis Laugarness. Þvottalaugarnar eru nú þurrar, en notkun þeirra lagðist af árið 1930 er Laugarveitan var virkjuð og markaði upphaf hitaveitu í Reykjavík. Á útivistarsvæðinu í Laugardal er hægt að skoða ummerki frá tíma Þvottalauganna. Þar eru fræðsluskilti um sögu lauganna og minnisvarði um framlag Thorvaldsenskvenna sem afhjúpaður var 19. nóvember 2005. Útilistaverkið Þvottakona (1958) eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara stendur í Laugardalnum til minningar um vinnu þvottakvenna.
Skautahöllin í Laugardal
Hægt að leigja sér skauta og svífa um svellið við blikkandi ljós og diskótónlist.
Viðey og Köllunarklettur
Köllunarklettur var við Viðeyjarsund í Reykjavík. Nafnið mun dregið af því að þaðan var kallað á ferju til Viðeyjar til flutnings yfir sundið. Köllunarklettur var látinn víkja vegna framkvæmda við Sundahöfn
Viðey er ein af perlum Reykjavíkur. Náttúran, fuglalífið og minjar um sögu og menningu gera eyjuna mjög spennandi. Fræðsluskilti eru staðsett víðsvegar um eyjuna og á þeim má finna upplýsingar um náttúruna sem og sögu staðarins. Hægt er að fá lánuð hjól og á sumrin er skipulögð dagskrá alla sunnudaga fyrir fjölskylduna. Ferjusiglingar út í Viðey eru frá Skarfabakka við sundahöfn. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.elding.is og www.videy.com.
Tilvalið að: Taka með sér nesti, ganga um eyjuna, skoða fuglalífið og gleyma sér.
Keiluhöllin býður uppá keilu, þythokki, golfhermi og ýmis önnur leiktæki. Af og til er hægt að fara í diskókeilu.
Keiluhölllin Öskjuhlíð, s: 511 5300, www.keiluhollinn.is.
Brettagarðar: Þróttheimar v. Holtaveg
Sparkvellir: Við Safamýri á félagasvæði Fram og við Réttarholtsskóla
Smíðavellir: Við Breiðagerðiskóla og við félagsmiðstöðina Þróttheima
Skólagarðar: Fossvogur við Bjarmaland s. 896 4037 og Laugardalur við Holtaveg s. 553 9429
Göngu- og hjólastígar: Skjámynd
Söfn
Bókasöfn
Kringlusafn, v/Listabraut, s. 580 6200, kringlusafn@borgarbokasafn.is
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 411-6160, solheimasafn@borgarbokasafn.is