Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Miðborg og Hlíðar

Frístundamiðstöðin Kampur
Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5
Sími: 411 5560
Netfang: kampur@reykjavik.is
Heimasíða: www.kampur.is

Sundlaug
Sundhöllin v/Barónsstígur, 101 Reykjavík, Sími: 411 5350
Afgreiðslutími: Virka daga - 6:30-21:30 og helgar - 8:00-19:00


Útivistarsvæði

Ylströndin í Nauthólsvík er fjölbreytt útivistarsvæði þar sem lögð er áhersla á útiveru, sólböð, sjóböð og siglingar líkt og tíðkaðist hér fyrr á árum. Sumarið 2000 var tekin í notkun glæsileg Ylströnd í Nauthólsvík. Reistir voru voldugir sjóvarnargarðar og inn fyrir þá dælt gullnum skeljasandi. Innan garðanna er fallegt lón þar sem kaldur sjór og heitt vatn renna saman í eitt. Þessar aðstæður minna meira á strendurnar við sægrænt Miðjarðarhafið en vík í nyrstu höfuðborg heims við Norður-Atlantshafið.
Tilvalið að: Fara í strandblak, sjósund, spila Kubb, leika sér með flugdreka, byggja sandkastala, flatmaga, sleikja sólina og njóta baðstrandarlífsins

Siglunes er í raun ævintýramiðstöð við sjóinn þar sem hressum og kjörkuðum krökkum gefst kostur á finna kröftum sínum og ævintýraþrá farveg. Í Siglunesi er boðið upp á siglinganámskeið fyrir börn og unglinga og þar er einnig starfræktur siglingaklúbbur  auk
Bátaleiga. Hægt að leigja kajak og árabáta.  Klukkutíma skemmtun fyrir alla fjölskylduna á sex hundruð krónur. Gott úrval af bátum.
Tilvalið að: Stunda róður, siglingar, sjókajak, sjósund, útivist, skokk, göngu, hjólreiðar, fuglaskoðun, línuskauta o.fl.

Öskjuhlíð
Í Öskjuhlíðinni er að finna minjar um hersetu á Íslandi, frá seinni heimsstyrjöldinni, villtar kanínur og ævintýraskóg. Perlan trónir á toppi hlíðarinnar og þaðan er fallegt útsýni yfir alla borgina.
Tilvalið að: Skokka, ganga, hjóla, fara í fuglaskoðun, leika sér með flugdreka og njóta útiverunnar.

Reykjavíkurhöfn
Endalaus ævintýri bíða þín við Reykjavíkurhöfn. Hægt er að kynnast sögu sjósóknar og sjómennsku á Sjóminjasafninu við Grandagarð, skoða togara og trillur og renna fyrir fisk.
Tilvalið að: Dorga, fylgjast með skipum og fuglum.

Tjörnin og Hljómskálagarðurinn
Við Tjörnina í Reykjavík má ávallt finna svangar endur og aðra skemmtilega fugla. Ráðhús borgarbúa er við enda tjarnarinnar og þar má finna risastórt upphleypt landakort af Íslandi. Hljómskálagarðurinn liggur í hjarta Reykjavíkur. Frábær staður fyrir alla fjölskylduna. Í austurenda garðsins er leikvöllur og klifurgrind auk þess er kolagrill til staðar þar sem tilvalið er að skella pylsu á grillið.
Tilvalið að: Gefa öndunum brauð, fara í landkönnunnarleik, telja allar stytturnar í Hljómskálagarðinum, fara á línuskauta eða hjólabretti, hjóla, skokka, stafaganga, skoða fuglana og fara í hina ýmsu útileiki.

Miklatún/Klambratún
Stór skemmtilegur garður við Kjarvalstaði. Þar er að finna brettapall, leikvöll, strandblakvöll, körfuboltavelli og fótboltavöll.
Tilvalið að: Skokka, spila blak, bocchia, fótbolta, körfubolta, fara á hjólabretti, í eltingaleik, hlaupa með flugdreka og henda frisbí.

Sparkvellir: Við Austurbæjarskóla
Smíðavellir: Við Austurbæjarskóla og við Hlíðaskóla
Skólagarðar: Skerjafjörður v/Þorragötu, s. 552 8482
Göngu og hjólastígar: Skjámynd


Söfn

Borgarbókasafn er almenningsbókasafn Reykvíkinga og öllum opið. Safnið var stofnað 1919 en hóf starfsemi 19. apríl 1923. Í safninu eru nú um 490.000 bækur og tímarit auk geisladiska, myndbanda og margmiðlunarefnis svo eitthvað sé nefnt. Í öllum söfnunum eru svokallaðir heitir reitir fyrir þá sem vilja koma með eigin tölvur og vinna á Netinu. Á öllum söfnum borgarinnar er góð aðstæða fyrir börn. Sunnudagar eru barnadagar í Aðalsafninu í Grófarhúsinu, þar sem boðið er upp á sögustund, föndur og aðra skemmtun. Dagskráin hefst kl. 15:00. Borgarbókasafn Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík, sími; 411 6100.

Listasafn Íslands
Hér er að finna mikið safn verka frá 19. og 20. öld eftir helstu myndlistamenn þjóðarinnar. Krakkahorn og listasmiðja  er  til staðar á safninu. Leiðsögn er á þriðjudögum og föstudögum kl. 12:00.
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, s. 515 9600, www.listasafn.is

Listasafn Reykjavíkur hefur umsjón með listaverkaeign borgarinnar. Reykjavíkurborg ber ábyrgð á stjórnun og fjármögnun safnsins. Listasafn Reykjavíkur samanstendur af fimm aðskildum safneignum: Almennri safneign Reykjavíkurborgar, Errósafni, Kjarvalssafni, Ásmundarsafni og safneign byggingarlistardeildar. Safneignin er sýnd í þremur húsum sem Listasafn Reykjavíkur hefur yfir að ráða: Kjarvalsstöðum við Flókagötu sem voru opnaðir 1973, Ásmundarsafni við Sigtún, opnað 1983 og Errósafnið er til sýnis í Hafnarhúsinu sem var formlega opnað árið 2000. Verk safnsins eru einnig til sýnis í opinberum byggingum og á opnum svæðum víða um borgina. Að auki er safnið með tímabundnar sýningar á innlendri og erlendri samtímalist og hönnun í öllum húsunum þremur.

Hafnarhús býður uppá reglulegar leiðsagnir, sérstaklega fyrir fjölskyldufólk, á sunnudögun kl. 14:00. Í safninu er mikið um gjörninga, innsetningar og óhefðbundna nálgun sjónlistar.
Hafnarhús Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík. Sími: 590 1200. Safnið er opið alla daga frá kl. 10:00-17:00, og fimmtudaga til kl. 22:00.

Á Kjarvalsstöðum er sérstök fræðslustarfsemi fyrir börn og fjölskyldur í norðursalnum. Auk þess eru yfirleitt listasmiðjur fyrir börn  sem tengjast þeim sýningum sem eru í gangi hverju sinni. Kjarvalsstaðir v/Flókagötu, 105 Reykjavík, Sími: 517 1290. Safnið er opið alla daga frá kl. 10:00-17:00.

Ásmundasafn
Höggmyndagarður. Garðurinn í kringum Ásmundasafn geymir margar höggmyndir eftir Ásmund Sveinsson. Listasmiðja fyrir börn er í safninu. Safnið er opið alla daga 1. maí-30. sept. kl. 10:00-16:00 og 1. okt.-30. apríl kl. 13:00-16:00. Sími: 553 2155.

Ljósmyndasafn Reykjavíkur er eina sjálfstætt starfandi ljósmyndasafnið á landinu. Það var upphaflega stofnað sem einkafyrirtæki árið 1981 en árið 1987 eignaðist Reykjavíkurborg safnið. Árið 2000 flutti svo Ljósmyndasafnið í ný húsakynni, í Grófarhús, Tryggvagötu 15, 6. hæð.

Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun í eigu íslenska ríkisins. Því er ætlað að vera miðstöð þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar frá upphafi til vorra daga og stuðla að því að sem flestir geti haft gagn og gaman af sögu og minjum lands og þjóðar. Meginhluti safnhússins hýsir grunnsýningu Þjóðminjasafnsins: Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, 101 Reykjavík.

Þjóðmenningarhúsið er vettvangur fyrir íslenskan þjóðararf í hnotskurn. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttu sýningahaldi. Þjóðmenningarhúsið er m.a. sameiginlegur vettvangur íslenskra þjóðmenningarstofnana með vönduðum sýningum á úrvali merkra þjóðargersema. Aðstaða er fyrir fundi, samkomur, listviðburði, opinberar athafnir og aðra viðburði.  Þjóðmenningarhúsið, Hverfisgötu 14, 101 Reykjavík, sími 545 1400.

Landnámssýning 871+_ 2 
Hér er fjallað um landnám í Reykjavík og byggt er á fornleifarannsóknum sem fram hafa farið í miðbænum. Miðpunktur sýningarinnar er skálarúst frá 10. öld, sem fannst þegar grafið var fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis og Túngötu. Búið var í skálanum frá því um 930 til 1000. Norðan við skálann fannst veggjarbútur sem er ennþá eldri, eða frá því um eða fyrir 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist hafa á Íslandi.

Norræna húsið
Í Reykjavík er menningarstofnun rekin af Norrænu ráðherranefndinni. Markmið Norræna hússins er að örva og styrkja menningartengsl milli Íslands og hinna Norðurlandanna. Í þeim tilgangi stendur Norræna húsið fyrir fjölbreyttri dagskrá menningarviðburða og myndlistasýninga og rekur bókasafn og upplýsingaþjónustuna Norðurlöndin í fókus.
Húsið er staðsett  við Sturlugötu 5, 101 Reykjavík. Sími: 551 7030, fax: 552 64 76. Skrifstofan er opin mán.-fös. kl. 9:00-16:00. Sýningarsalirnir eru opnir þri.-sun. kl. 12:00-17:00, lokað á mánudögum. Bókasafnið er opið kl. 12:00-17:00 alla daga vikunnar. Húsið er lokað á stórhátíðum.

Listasafn Einars Jónssonar var vígt á Jónsmessudag árið 1923. Voru það merk tímamót í íslenskri myndlist þar sem landsmenn eignuðust þar með sitt fyrsta listasafn.  Árið 1909 bauð Einar Jónsson íslensku þjóðinni öll verk sín að gjöf með því skilyrði að reist yrði yfir þau safnhús. Safnið er við Eiríksgötu. Opnunartími er 1. júní -15. september, alla daga nema mánudaga kl. 14:00-17:00 og 16. september-31. maí, laugardaga og sunnudaga kl. 14:00-17:00 Lokað í desember og janúar.




English Español Polski Thai