Vesturbær
Frístundamiðstöðin Frostaskjól
Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík
Sími: 411 5700
Gsm: 695 5058
Netfang: frostaskjol@itr.is
Heimasíða: www.frostaskjol.is
Sundlaug
Vesturbæjarlaug v/Hofsvallagötu, 107 Reykjavík, Sími: 411 5150
Afgreiðslutími: Virka daga - 6:30-22:00 og helgar - 8:00-20:00
Útivistasvæði
Fjaran við Ægissíðu sem og fjaran við Gróttu er kjörin til að eyða góðum degi. Þar eru kort sem sýna fjallahringinn og nöfn á fuglum og flóru á svæðinu.
Muna að taka með sér: fötur, skóflur og ílát til að safna saman skeljum, steinum og öðrum fjársjóðum.
Göngustígur við Ægissíðu
Mjög flottur göngustígur er eftir allri Ægissíðunni.
Tilvalið að: Fara á línuskauta, hjóla, hjólabretti, skokka, fara í stafagöngu, fuglaskoðun og telja fuglategundir á svæðinu.
Göngustígaævintýraför
Í vesturbænum úir og grúir af göngustígum á milli húsa. Tilvalið að fara í ævintýraferð um hverfið.
Reykjavíkurhöfn
Endalaus ævintýri bíða þín við Reykjavíkurhöfn. Hægt er að kynnast sögu sjósóknar og sjómennsku á Sjóminjasafninu við Grandagarð, skoða togara og trillur og renna fyrir fisk. Stundum koma selir inní höfnina.
Tilvalið að: Dorga, fylgjast með skipum og fuglum.
Hólavallagarðurinn/Kirkjugarðurinn við Suðurgötu
Kirkjugarðurinn var vígður 1838 og er að danskri fyrirmynd.Hann hefur fengið að halda sínum upprunalega stíl, er mjög fallegur og einstaklega gróinn. Yfir hundrað plöntutegundir er að finna í garðinum.
Tilvalið að: Ganga á milli legsteinanna og skoða hvaða nöfn voru í tísku hér áður fyrr.
Brettagarðar: Ath. brettaskemmu við Loftkastalann
Sparkvellir: Við KR-heimilið
Smíðavellir: Við Melaskóla
Skólagarðar: Skerjafjörður við Þorragötu s. 552 8482
Göngu- og hjólastígar: Skjámynd
Söfn
Sjóminjasafn Reykjavíkur er staðsett í húsnæði gömlu Bæjarútgerðar Reykjavíkur (BÚR) við hliðina á Kaffivagninum. Staðsetningin er einstök - húsið er stór þáttur í útgerðarsögu Reykjavíkur og útsýnið stórbrotið af svölum safnsins yfir höfnina. Á safninu er hægt að sjá hvernig sambúð Íslendinga var og er í dag við hafið og lífríki sjávar.
Opið 13:00-17:00 alla daga nema mánudaga. Varðskipið Óðinn er opið um helgar, leiðsagnir kl. 14:00 og 15:00.