Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Samþykkt fyrir ÍTR

Samþykkt fyrir íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar

 

Umboð

1.gr.

Íþrótta- og tómstundaráð starfar í umboði borgarráðs með þeim hætti sem nánar er kveðið á um í samþykkt þessari, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007, með síðari breytingum, og eftir því sem lög mæla fyrir um.

Verksvið

2. gr.

Íþrótta- og tómstundaráð mótar stefnu og hefur faglega forystu í íþrótta- og tómstundamálum og tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs á verksviði sínu. Jafnframt hefur ráðið eftirlit með að samþykktum og stefnumörkun borgarinnar á verksviði þess sé fylgt. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður.

3. gr.

Íþrótta- og tómstundaráð fer m.a. með eftirtalin verkefni á sviði íþrótta- og tómstundamála:

1.Vinnur að eflingu íþrótta- og tómstundastarfs og hollrar tómstundaiðju almennings í Reykjavík og hefur samvinnu við þá aðila sem um slík mál fjalla.

2.Hefur eftirlit með rekstri mannvirkja á sviði íþrótta- og tómstundamála sem eru í eigu Reykjavíkurborgar eða Reykjavíkurborg hefur veitt styrk til, s.s. sundstaða og íþróttamannvirkja.

3.Gerir tillögur til borgarráðs að gerð og staðsetningu nýrra mannvirkja til íþrótta- og tómstundastarfs ásamt tillögum um rekstur þeirra eftir því sem við á.

4.Vinnur að nýsköpunar- og þróunarstarfi á sviði íþrótta- og tómstundamála, s.s. heilsubótarverkefni, og sér til þess að til séu sem gleggstar upplýsingar um íþrótta- og tómstundamál og þá þjónustu sem í boði er.

6.Fer með málefni Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, Nauthólsvík – ylstrandar, Siglunes og skíðasvæða.

7.Annast umsjón með þjóðhátíð í Reykjavík 17. júní.

8.Vinnur að upplýsinga-, menningar- og tómstundastarfi fyrir ungt fólk m.a. með rekstri Hins Hússins.

9.Vinnur að atvinnumálum ungs fólks í Reykjavík.

10.Hefur eftirlit með framkvæmd laga og reglugerða á sviði íþrótta- og tómstundamála, að því marki sem lögin leggja skyldur á herðar sveitarfélaga.

11.Fylgist með því að starfsstaðir á vegum íþrótta- og tómstundasviðs fari að settum reglum, veiti góða þjónustu og starfsemi þeirra sé skilvirk og hagkvæm.

Ágreiningi um hvort tiltekið erindi falli undir verksvið íþrótta- og tómstundaráðs ber að vísa til borgarráðs.

Skipan

4. gr.

Íþrótta- og tómstundaráð er skipað 7 fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Ráðið kýs sér varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.

Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt skv. 61 gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi íþrótta- og tómstundaráðs með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann ekki fulltrúa í ráðinu.

Íþrótta- og tómstundaráð getur í sérstökum tilfellum skipað undirnefndir, starfs- eða vinnuhópa til að fjalla um afmarkaða málaflokka. Slíkum nefndum og hópum skal setja erindisbréf þar sem skilgreind eru helstu verkefni og starfinu sett tímamörk. Tilkynna skal um skipan allra undirnefnda, starfs- og vinnuhópa til borgarráðs.

Íþrótta- og tómstundaráð getur heimilað setu áheyrnarfulltrúa á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt samkvæmt nánari ákvörðun ráðsins.

Verkstjórn og verkaskipting

5. gr.

Formaður íþrótta- og tómstundaráðs er í forsvari fyrir það umstefnumótun og ákvarðanir þess, eftir því sem við á, og hefur ásamt öðrum fulltrúum í ráðinu eftirlit með framkvæmd mótaðrar stefnu á verksviði ráðsins.

Framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs (ÍTR) ber ábyrgð á framkvæmd ákvarðana ráðsins og rekstri og stjórnsýslu íþrótta- og tómstundasviðs, þ.m.t. að fjármál og starfsmannamál séu innan heimilda og í samræmi við stefnu borgaryfirvalda.

Boðun funda og fundarsköp

6. gr.

Íþrótta- og tómstundaráð heldur að jafnaði tvo fundi í mánuði. Formaður getur boðað til aukafunda eftir þörfum. Komi fram ósk þriggja ráðsmanna um fund í ráðinu ber að verða við því. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Formaður boðar til funda, ákveður dagskrá í samráði við framkvæmdastjóra og stýrir fundum ráðsins.Á dagskrá skulu m.a. tekin mál, sem fulltrúar í ráðinu hafa óskað eftir að tekin verði þar fyrir, enda séu þau á verksviði ráðsins.Fundir skulu boðaðir með a.m.k. sólarhrings fyrirvara og skal dagskrá fylgja fundarboði.

Heimilt er að taka mál til meðferðar í ráðinu þótt ekki sé það tilgreint á útsendri dagskrá, en skylt er þá að fresta afgreiðslu þess til næsta fundar, sé þess óskað.

Um fundarsköp fer eftir samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007, eftir því sem við á.

Framkvæmdastjóri eða staðgengill hans skal sitja fundi ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Þá getur ráðið boðað til fundar einstaka starfsmenn Reykjavíkurborgar, sem og aðra þásem það telur þörf á hverju sinni.

Fundaskipulag og ritun fundargerða

7. gr.

Ráðsfundur skal að jafnaði haldinn fyrir luktum dyrum og er þá óheimilt að greina opinberlega frá ummælum sem fram koma hjá einstökum fundarmönnum.

Íþrótta- og tómstundaráð skal halda gerðarbók og senda eftirrit fundargerða til borgarráðs jafnóðum. Um ritun fundargerða fer eftir verklagsreglum skrifstofu borgarstjórnar. Íþrótta- og tómstundasvið sér um skrifstofuhald fyrir ráðið og leggur því til fundarritara.

Í upphafi árs skal kynna fundadagatal ráðsins.Þar komi m.a. fram tímasetning funda til undirbúnings starfs- og fjárhagsáætlunar og yfirferðar ársfjórðungsuppgjöra, ásamt tímasetningu opinna funda og samráðsfunda með hagsmunaaðilum, eftir því sem við á.

Samráð

8. gr.

Íþrótta- og tómstundaráð ber ábyrgð á upplýsingamiðlun og samráði við íbúa, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila sem tengjast verkefnum ráðsins. Auk lögbundis samráðs skal ráðið leita umsagna eða annars samráðs þegar við á og efni mála gefur tilefni til.

Við undirbúning veigamikillar stefnumörkunar til langs tíma skal leggja fram í ráðinu sérstaka áætlun um hvernig haga á samráði við stefnumótun.

Íþrótta- og tómstundaráð hefur nána samvinnu við félög og aðra sem hafa íþrótta- og tómstundamál á sinni stefnuskrá, mótar stefnu um samstarf við þau og gefur þeim kost á, eftir því sem þurfa þykir, að tilnefna fulltrúa til samstarfs.

Íþrótta- og tómstundaráði ber að halda a.m.k. einn opinn fund á ári og skal dagskrá hans og fyrirkomulag kynnt með góðum fyrirvara m.a. fyrir borgarfulltrúum, helstu samstarfsaðilum, félögum og samtökum sem starfa að íþrótta- og tómstundamálum í borginni.

Fjármál

9. gr.

Íþrótta- og tómstundaráð fær fjárhagsramma vegna verkefna sem undir það heyra og felur framkvæmdastjóra íþrótta- og tómstundasviðs að vinna starfsáætlun og tillögur í frumvarp að fjárhagsáætlun í samræmi við stefnumótun og forgangsröðun ráðsins.

Ráðið afgreiðir starfsáætlun og hefur eftirlit með að tillögur í frumvarpi að fjárhagsáætlun séu í samræmi við starfsáætlun og mótaða stefnu.

Tillögur um breytingar á rekstrinum sem leiða til breytinga á gjaldskrá eða þjónustu skal sérstaklega skýra og rökstyðja. Formaður ráðsins og framkvæmdastjóri kynna borgarráði starfsáætlun og tillögur í frumvarpi að fjárhagsáætlun.

Ráðningar

10. gr.

Borgarráð ræður framkvæmdastjóra íþrótta- og tómstundasviðs, að fenginni tillögu borgarstjóra, til fimm ára í senn. Framkvæmdastjóri ræður í aðrar stjórnunarstöður á íþrótta- og tómstundasviði.

Málsmeðferð

11. gr.

Við undirbúning mála og stjórnvaldsákvarðanir skal þess gætt að farið sé að stjórnsýslulögum og verklagsreglum um stjórnsýsluna.

Óski aðili frekari rökstuðnings eða beri hann fram kvörtun vegna afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs skal honum leiðbeint um réttarstöðu sína, m.a. um heimild til að óska endurupptöku stjórnvaldsákvörðunar í borgarráði með hliðsjón af 24. gr. stjórnsýslulaga. Telji borgarráð að skilyrði endurupptöku séu fyrir hendi skal íþrótta- og tómstundaráð taka mál upp að nýju.

Um hæfi kjörinna fulltrúa og starfsmanna vísast í samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

Samþykkt þessi tekur þegar gildi og fellur þá jafnframt úr gildi samþykkt fyrir íþrótta- og tómstundaráð frá 5. apríl 2005.

Samþykkt í borgarstjórn 20. september 2011




English Español Polski Thai