Mannréttindamál
Mannréttindamál hjá Reykjavíkurborg
Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarstjórn 16. maí 2006. Stefnan miðar að því að allar manneskjur fái notið mannréttinda án tillits til uppruna, þjoðernis, litarháttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu.
Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar starfar í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og lög um jafna stöðu og rétt kvenna og karla. Ráðið er ráðgefandi fyrir borgaryfirvöld um málefni sem varða verksvið hennar. Samþykkt um ráðið má sjá hér. Borgarstjórn kaus í ráðið 21. ágúst 2008. Hér má sjá hverjir eiga sæti í ráðinu.