Ungmennaráð

Haustið 2001 voru sett á laggirnar ungmennaráð í öllum hverfum Reykjavíkurborgar. 8 ungmennaráð eru að störfum. Starfstími hvers ráðs er eitt ár í senn og hefst starfsárið 1. október ár hvert. Ungmennaráðin hafa svo með sér samráðs-og samstarfsvettvang, Reykjavíkurráð ungmenna.
Tilgangur
Tilgangur ungmennaráðanna er að þeir sem eru yngri en 18 ára geti tekið virkan þátt og haft áhrif í samfélaginu þó að þeir hafi ekki kosningarétt. Starfsemi ungmennaráða gefur unglingum tækifæri á að láta í sér heyra og vinna að málefnum ungs fólks.
Markmið
- Að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila.
- Að veita þátttakendum fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum og vettvang til að þjálfa sig í þeim.
Skipurit
Nemendaráð allra grunn-og framhaldsskóla tilnefna tvo fulltrúa, 13-18 ára, til að starfa í ungmennaráði viðkomandi hverfis. Ungmennaráð hverfisins tilnefnir tvo fulltrúa til setu í Reykjavíkurráði ungmenna. Ungmennaráðin geta jafnframt óskað eftir fleiri fulltrúum til starfa í ráðunum. Ungmennaráðin haga starfi sínu eftir því sem þau telja best til að ná markmiðum sínum hverju sinni.
Kynnt fyrir unglingum
Verkefnið er kynnt fyrir nemendaráðum skólanna á hverju hausti, ýmist af fulltrúum í ungmennaráði eða starfsmanni ráðsins. Jafnframt er verkefnið kynnt eftir aðstæðum og þörfum í hverju hverfi fyrir sig.
Starfsmaður ráðsins
Starfsmaður ráðsins er jafnan starfsmaður borgarinnar, ýmist frístundamiðstöðvar eða þjónustumiðstöðvar viðkomandi hverfis. Í flestum hverfum starfa tveir starfsmenn með ungmennaráði, einn frá hvorri miðstöð. Starfsmenn ungmennaráðs eru fulltrúum í ungmennaráðum til halds og trausts og því með reynslu af starfi með ungu fólki, sem og þekkingu á lýðræði og uppbyggingu Reykjavíkurborgar.
Netföng ungmennaráða
Ungmennaráð Árbæjar ung.arbaer@itr.is
Ungmennaráð Breiðholts ung.breidholt@itr.is
Ungmennaráð Grafarvogs ung.grafarvogur@itr.is
Ungmennaráð Kjalarness ung.kjalarnes@itr.is
Ungmennaráð Miðbæjar ung.midbaer@itr.is
Ungmennaráð Vesturbæjar ung.vesturbaer@itr.is
Ungmennaráð Kringluhverfis ung.austurbaer1@itr.is
Ungmennaráð Laugardals ung.austurbaer2@itr.is