Frístundaklúbbar fyrir 10-16 ára

Fjórir frístundaklúbbar eru í borginni fyrir börn og unglinga með fötlun á aldrinum 10-16 ára.
Klúbbarnir eru opnir eftir að skóladegi lýkur til 17:00 alla virka daga. Þeir eru einnig opnir kl. 8:00-17:00 í öllum skólafríum fyrir utan vetrarfrí en þá eru þeir lokaðir. Opið er allan daginn í páska-, jóla- og sumarfríum og á starfsdögum og foreldraviðtalsdögum skólanna.
Meginmarkmið með starfinu er að bjóða upp á fjölbreytt og spennandi frístundatilboð þar sem uppeldisgildi frítímans eru höfð að leiðarljósi.
Stefnt er að því að tengja þetta starf öðrum tilboðum sem þessum aldurshópi býðst í hverfunum.
Frístundamiðstöðin Kringlumýri er þekkingarmiðstöð í málefnum barna og unglinga með fötlun.
Deildarstjóri frítímastarfs fatlaðra barna er Katrín Þórdís Jacobsen, s: 411 5404
Gjaldskrá frístundaklúbbanna má finna hér.
Hægt er að sækja um dvöl í frístundaklúbbunum á Rafrænni Reykjavík.
Yfirlit yfir frístundaklúbbana í borginni:
Frístundaklúbburinn Hofið sem þjónustar börn og unglinga úr almennum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu vestan Elliðaáa.
Sólheimum 35, 104 Reykjavík
Auður Kvaran, gsm: 664 7774
hofid@reykjavik.is, www.kringlumyri.is/hofid
Frístundaklúbburinn Garður sem þjónustar 10-12 ára börn úr Klettaskóla
Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík
Ólöf Haflína Ingólfsdóttir, s: 411-5441, gsm: 695-5143
gardur@reykjavik.is, www.kringlumyri.is/gardur
Frístundaklúbburinn Höllinn í Grafarvogi sem þjónustar börn og unglinga í Grafarvogi og Grafarholti.
Egilshöll, 112 Reykjavik
Ásdís Sigurjónsdóttir, s: 520-2300, gsm: 695-5189
hollin@reykjavik.is, www.gufunes.is/hollin
Frístundaklúbburinn Hellirinn í Breiðholti sem þjónustar börn og unglinga í Árbæ, Norðlingaholti og Breiðholti.
Kleifarseli 18, 109 Reykjavík
Eiður Ottó Bjarnarson, s: 411-5750, gsm: 6955135
hellirinn@reykjavik.is, www.midberg.is/hellirinn