Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Frístundir barna og unglinga

Frístundir barna og unglinga

Skrifstofa tómstundamála hefur yfirumsjón með frístundastarfi  fyrir börn, unglinga og ungmenni. Leiðarljós starfseminnar eru að börnum og ungmennum standi til boða frístundastarf sem hefur uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Áhersla er lögð á virka þátttöku, reynslunám, lýðræði og jafnræði. Sérstaklega er hugað að því að virkja einstaklinga sem eiga undir högg að sækja vegna fötlunar eða félagslegra aðstæðna. Frístundastarf er í eðli sínu forvarnarstarf þar sem unnið er með viðhorf og atferli barna og ungmenna í átt til heilbrigðs lífstíls og virkni í samfélaginu.

Starfsskrá skrifstofu tómstundamála er kjölfesta starfsins.

Auk starfsemi á vegum skrifstofu tómstundamála sinnir ÍTR víðtæku samstarfi við hagsmunaaðila í íþrótta- og æskulýðsstarfi, veitir styrki til félaga og styrkir þátttöku barna og unglinga í starfsemi þeirra með Frístundakortinu.


Frístundastarf

Frístundir barna og unglinga

Í Reykjavík eru 6 frístundamiðstöðvar, Ársel, Frostaskjól, Gufunesbær, Kampur, Kringlumýri og Miðberg. Starfsvettvangur frístundamiðstöðva er frítími allra borgarbúa en megináherslan er lögð á barna- og unglingastarf. Frístundamiðstöðvarnar sjá um rekstur félagsmiðstöðva og frístundaheimila í sínu hverfi. Skipurit frístundamiðstöðva.

Mikið er lagt upp úr framboði á fjölbreyttu og áhugaverðu frístundastarfi. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfs starfsfólks.

Ársel í Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti
Forstöðumaður, Jóhannes Guðlaugsson, s: 411 5800
johannes.gudlaugsson@reykjavik.is,

Frostaskjól í Vesturbæ
Forstöðumaður, Guðrún Kaldal, s: 411 5700
gudrun.kaldal@reykjavik.is,

Gufunesbær í Grafarvogi og á Kjalarnesi
Forstöðumaður, Atli Steinn Árnason, s: 411 5600
atli.steinn.arnason@reykjavik.is,

Kampur í Miðborg og Hlíðum
Forstöðumaður, Selma Árnadóttir, s: 411 5560
selma.arnadottir@reykjavik.is,

Kringlumýri í Laugardal og Háaleiti
Forstöðumaður, Haraldur Sigurðsson, s: 411 5400
haraldur.sigurds@reykjavik.is,

Miðberg í Breiðholti
Forstöðumaður, Helgi Eiríksson, s: 411 5750
helgi.eiriksson@reykjavik.is,

Frístundamiðstöðvar í Reykjavík.

Skoðið Frístundamiðstöðvar ÍTR á stærra korti.


Mikil ánægja með starf frístundaheimila og metfjöldi

Aldrei áður hafa fleiri börn verið skráð inn á frístundaheimili borgarinnar en þau eru nú rösklega 3.300 á aldrinum 6-9 ára. Í nýlegri könnun sem gerð var meðal foreldra kom fram mikil ánægja með þjónustuna. Þannig segja 88% foreldra að barn þeirra sé mjög eða frekar ánægt á frístundaheimilinu og 87% eru mjög eða frekar ánægðir með þjónustuna. 90% foreldra eru ánægðir með framkomu starfsmanna og 84% telja að starfsfólkið sýna barni þeirra hlýju og nærgætni þegar það þarf á því að halda. Þá telja 92% foreldra að dvölin á frístundaheimilinu hafi góð félagslega áhrif á barn þeirra. Alls svöruðu 1.103 foreldrar könnuninni.

Starfsfólk skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar er afar ánægt með viðbrögð foreldra og verða niðurstöður könnunarinnar nýttar til að gera gott starf enn betra. Um þessar mundir stendur jólaundirbúningurinn sem hæst á frístundaheimilunum og er mikill spenningur í fólki,  stórum sem smáum.



Íþrótta- og tómstundasvið, Borgartúni 12-14.

Íþrótta- og tómstundasvið

Höfðatorg
Borgartún 12-14
105 Reykjavík
Sími 411 5000